Fókus

BBC sakað um ritskoðun fyrir að afmá slagorð um trans konur

Mynd
Skjáskot/BBC

Breska ríkisútvarpið BBC er sakað um ritskoðun eftir að slagorð til stuðnings transkonum var afmáð með stafrænni myndvinnslu af bol sem leikkonan Bethany Antonia klæddist í sjónvarpsþættinum Strictly Come Dancing. Ákvörðunin hefur vakið hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum en BBC segir að um hefðbundnar ritstjórnarreglur sé að ræða.

Í þættinum Strictly Come Dancing sem var sýndur síðastliðið  laugardagskvöld var sýnt myndskeið frá æfingum þar sem Bethany klæddist hvítum bol með áletruninni „PROTECT THE DOLLS“, eða „Verndum dúkkurnar“. Síðar í útsendingunni hafði áletrunin hins vegar verið afmáð þannig að bolurinn virtist alveg hvítur.

Slagorðið hefur á undanförnum misserum orðið þekkt tákn stuðnings við transkonur. Það vakti fyrst verulega athygli árið 2025 þegar fatahönnuðurinn Conner Ives setti það á bol sem síðan hefur verið seldur til styrktar góðgerðarsamtökum.

Orðið „dolls“, eða dúkkur, á sér rætur í jaðarmenningu svartra og suður-amerískra hinsegin einstaklinga í New York á níunda áratugnum, þar sem það var meðal annars notað sem samstöðuheiti yfir transkonur.

Fjölmargar heimsþekktar stjörnur, þar á meðal Madonna og Mariah Carey, hafa klæðst bolnum. Sala á bolnum hefur skilað hundruðum þúsunda í framlög til samtaka sem styðja transfólk.

Ákvörðun BBC vakti mikla reiði á samfélagsmiðlum og sökuðu margir ríkissjónvarpið um að reyna að fela stuðning við transfólk.

„Í þættinum sjálfum þurrkuðu þau áletrunina alveg út. Þetta er gjörsamlega fyrirlitlegt,“ segir notandinn.

Annar notandi sagði ákvörðunina skammarlega.

„Að fjarlægja slagorðið 'Protect the Dolls' með stafrænni myndvinnslu af bol Bethany Antonia í Strictly Come Dancing er skammarleg og huglaus ritskoðun.“

Talsmaður BBC hafnaði því í samtali við Independent að áletrunin hefði verið fjarlægð vegna afstöðu hennar til transfólks.

„Eins og hefðbundin vinnubrögð í skemmtiþáttum BBC gera ráð fyrir, og í samræmi við ritstjórnarreglur okkar, eru gerðar viðeigandi ráðstafanir til að draga úr sýnileika áberandi vörumerkja eða slagorða sem kunna að birtast, óháð orðalagi þeirra eða þeim skilaboðum sem þau fela í sér.“ Skýringin virðist þó ekki hafa sannfært samfélagsmiðla og hafa margir áfram gagnrýnt ákvörðunina.