Fókus

Guðmundur Felix fékk slæmar fréttir: „Þetta verður flóknara en það leit út fyrir í upphafi“

Mynd
Skjáskot af Instagram

Guðmundur Felix Grétarsson segir að það sé flóknara en það hafi litið út fyrir í upphafi að losna við krabbameinið úr nefinu. Fékk hann þær slæmu fréttir að við myndatöku hafi komið í ljós að æxlið gæti verið að vaxa aftur, það er þó ekki ljóst hvort svo sé.

Líkt og fjallað var um fyrr í haust var Guðmundur Felix, sem gekkst undir handleggjaágræðslu árið 2021, greindur með krabbamein í nefinu sem þurfti að fjarlægja. Var það fjarlægt og stóð til að endurbyggja nefið á næsta ári. 

Sjá einnig: Guðmundur Felix sýnir nefið eftir aðgerðina

„Jæja, það eru vendingar í krabbameinsmálinu. Ég á að hefja geislameðferð næsta þriðjudag en skanni sýndi að æxlið gæti verið að vaxa aftur,“ segir hann í myndbandi sem birt var á Instagram fyrr í dag. „Þannig að ég er að fara að hitta lækni innan klukkutíma til að sjá þetta betur eða taka sýni frá þessu sem fannst í skannanum.“

Það sé útlit fyrir að það gæti þurft að fresta geislameðferðinni, kannski sé þetta þó ekkert. Ofan á það bætist við annað vandamál, tengt handleggjunum.

„Já. Þetta verður flóknara en það leit út fyrir í upphafi. Vegna þess að ofan á þetta er ég með einkenni sem benda til að líkaminn sé að hafna handleggjunum. Og venjulega er það tæklað með auknum skammti af ónæmisbælandi lyfjum. Það er ekki það besta í stöðunni þegar þú ert með æxli sem berst fyrir lífi sínu í nefinu þínu. Þannig að við sjáum bara hvernig þetta fer.“