Fókus

Barnastjarnan sér eftir brjóstaminnkuninni þegar hún var 15 ára

Mynd
Raven-Symone. Mynd: Getty.

Leikferill barnastjörnunnar Raven-Symoné  hófst í The Cosby Show og hún varð síðar fræg hjá Disney Channel með eigin sjónvarpsþætti, That's So Raven, sem sýndir voru í 100 þáttum á árunum 2003 til 2007.

Raven var um 17 ára gömul þegar hún lék fyrst í þáttunum og tveimur árum áður en hún lék Raven Baxter fór hún í brjóstaminnkunaraðgerð.

Leikkonan, sem nú er fertug, hefur nýlega rifjað upp aðgerðina sem hún fór í svo ung að aldri og lýst því yfir að hún sjái eftir því að hafa verið „of ung“.

„Ég hefði átt að gera þetta eftir kynþroska,“ sagði hún við Allure í nýju viðtali. „Brjóstin líta enn vel út, en þetta var gert í flýti. Ég vildi óska ​​að ég hefði verið sterkari til að segja nei.“

Raven segist aldrei átt í vandræðum með stærri brjóst og sagði í gríni að stór brjóst gætu „komið manni hvert sem er“. „Þessar þrefaldar D-s voru að slá í gegn,“ sagði Raven.

Hún segist hafa fundið fyrir þrýstingi að fara í brjóstaminnkun frá þeim sem eru í kringum sig,  þar á meðal frá föður sínum. Hún sagði við PEOPLE árið 2024: „Ég fór úr þreföldu D alla leið niður í B. Einhver sagði að ég þyrfti að gera það til að komast í þátt.“

Raven hélt áfram og sagði að pabbi hennar hefði „ráðlagt eindregið“ að hún gengist undir aðgerðina. Auk brjóstaminnkunar fékk hún fitulyf í von um að fólk myndi „hætta að kalla mig feita“.

Mynd
Raven í hlutverki sínu í The Cosby Show.

Í viðtali sínu við Allure útskýrði  Raven einnig að það væru aðstæður snemma í ferlinum sem ýttu undir óöryggi hennar.

„Þegar ég var ung þurfti ég að fara í eitthvað sem kallaðist mátun,“ sagði hún. „Þegar ég var níu ára vissi ég að ég gæti ekki fengið mér beyglur og rjómaost á morgnana því þá myndi klæðnaðurinn sýna hversu stór maginn á mér var.“ Litið til baka skilur Raven að það var hennar „skylda“ að sýna „þykkari manneskju“ í sjónvarpinu.

Þegar hún var spurð hvað hún myndi segja við yngra sjálf sitt:: „Þú munt taka þungann af því hvernig það lítur út að vera þykkari manneskja í bransanum. Aðrir munu koma og gera þetta ofurvinsælt, og þú verður bara að geyma áfallið frá þeim tíma fyrir aðra. Það er þín skylda á þessu tímabili núna.“

Það er ljóst að Raven vill vera hreinskilin, svo mikið að hún viðurkenndi nýlega að hún noti bleyjur ... En það er ekki til að geta sleppt því að fara á klósettið. Í staðinn notar hún þær á meðan á blæðingum stendur því henni líkar ekki að nota dömubindi eða túrtappar.

„Ég get bara verið í bleyju allan daginn í litlum barnabol og með snuð og hlaupið um húsið,“ sagði hún við konu sína, Miröndu Pearman-Maday, í hlaðvarpi þeirra Tea-Time.