Ástralska klámstjarnan Annie Knight gekk í hnapphelduna um helgina. Tengdamóðir hennar hélt tilfinningaþrungna ræðu í veislunni en það vakti mikla athygli að tengdafaðir klámstjörnunnar var hvergi sjáanlegur.
Knight giftist unnusta sínum, Henry Brayshaw, en parið trúlofaðist í mars 2025.
Sjá einnig: Klámstjarnan sem endaði á sjúkrahúsi eftir kynlífsmaraþon gengin í hnapphelduna
Knight rataði í heimsfréttirnar í maí í fyrra þegar hún endaði á sjúkrahúsi eftir að hafa stundað kynlíf með 583 karlmönnum á sex klukkustundum.
Á sínum tíma var hún spurð út í samband sitt við Henry en þau voru á þessum tíma trúlofuð. Hún sagði hann mjög stuðningsríkan.
Knight birti myndband af fallegri og persónulegri ræðu tengdamóður sinnar, Söruh Brayshaw.
Knight sagði fólk einblína of mikið á einhvern brandara eða þá staðreynd að tengdafaðir hennar hafi ákveðið að mæta ekki í brúðkaupið. Brandarinn sem um ræðir var þegar einn brúðkaupsgestur sagði yfir hópinn: „Ég vil þakka 30 þúsund sorglegu og einmana karlmönnunum sem borguðu fyrir þetta.“
Hann var þá að vísa í áskrifendur Knight á OnlyFans.
Stolt af þeim báðum
Í ræðunni sagðist Sarah vera mjög stolt af Henry. Hún hrósaði honum fyrir að geta tekið ábyrgð á eigin mistökum og þroskast í kjölfarið. Hún ræddi einnig um Knight og sagði hana vera ótrúlega konu, sjálfsörugga, metnaðarfulla og umhyggjusama og sagðist einnig stolt af því að kalla Knight tengdadóttur sína.
Horfðu á myndbandið hér að neðan.
@annieknight78 I have been seeing way too many news articles focusing in on one bad joke or the absence of one person. We had 72 guests at our wedding and every single one of them said they had never been to a wedding filled with more love and support. Every single guest that was present would start a war for Henry and I and vice versa. That is a testament to Henry and I’s love. I feel immense sadness for the people who decided not to come on the day. That’s going to be something they will regret for the rest of their lives. It is their loss, not ours. To my beautiful mother-in-law, Sarah, I love you and we cannot thank you enough for standing up and representing Henry’s family. He gets all his strength and morals from you and I’m proud to be your daughter ! #henrybrayshaw #annieknight #wedding #marriage #jamesbrayshaw ♬ original sound - Annie Knight