Fókus

Tengir þú við þetta? – Samskipti við tilfinningalega vanþroskað fólk

Mynd
Ragga Nagli Mynd: Hanna

Ragnhildur Þórðardóttir, eða Ragga Nagli eins og hún er betur þekkt, er klínískur heilsusálfræðingur og einkaþjálfari. Á Facebook heldur hún úti vinsælli síðu þar sem hún birtir reglulega pistla um hreyfingu, mataræði og fleira. Fyrr í vikunni skrifaði hún um tilfinningalega vanþroskað fólk og tók nokkur dæmi.

Við gefum henni orðið.

„Tilfinningalega vanþroskað fólk skilur ekki mörk og kann ekki að virða þau. Það mun aldrei sýna þér auðmýkt eða einlægni,“ segir Ragnhildur og bætir við að þessir einstaklingar muni aldrei sjá flísina í sínu auga.

„Bara bjálkana í smettinu á þér.“

Ósannar sögur

„Söguskýringar þeirra eru að hinn aðilinn er erfiður, kuldalegur og vondur við þau. Einelti og slaufun af engri ástæðu. Fórnarlambsvæðing og meðaumkunarrúnk í allri sinni dýrð,“ segir Ragnhildur og bætir við að ef þú hættir að útskýra, réttlæta og afsaka þig þá ert þú erfiður og ósveigjanlegur.

„Þú minnkar samskipti eftir áralangt ofbeldi og þau skilja bara hvorki upp né niður í þessari útilokun.

Þú lætur ekki bjóða þér öskur og ofbeldi og yfirgefur aðstæður, en í þeirra veröld raukst þú bara á dyr.“

En hér er vandinn. „Dropinn holar steininn. Þegar við erum marineruð í þeirra útgáfu af því sem gerðist í staðinn fyrir okkar eigin, förum við að efast um eigin upplifun og tilfinningar,“ segir Ragnhildur og tekur dæmi um hvernig við getum farið að efast um okkur sjálf.

„Er ég að bregðast of harkalega við?

Er ég bara í dramakasti yfir engu?

Hefði ég ekki átt að setja mörk?“

Setja mörk

Ragnhildur segir að tilfinningar séu upplýsingar. „Þær segja okkur þegar við þurfum að setja mörk. Taugakerfið þitt lætur þig vita þegar manneskja er ógn við öryggi þitt,“ segir hún og bætir við:

„Stundum er það allra besta sem þú gerir fyrir heilsu, vellíðan og sálarró að minnka eða slíta á samskiptin.

En þú verður alltaf vondi kallinn í þeirra söguskýringu. Vertu eins og Teflon-panna og leyfðu því að hrökkva af þér með núvitund þriðja augans í sólarplexus.“