Sólveig Jónsdóttir greindist með brjóstakrabbamein í maí 2026 eftir að hafa fundið fyrirferð í brjóstinu fyrr á árinu. Hún segist hafa upplifað alls konar tilfinningar sem margar hafi komið aftan að henni.
„Ég upplifi alls konar tilfinningar, margar sem komu kannski aftan að manni og ég bjóst ekki við að upplifa. Ég var ansi hrædd en svo upplifði ég líka að ég var voðalega þakklát fyrir að þetta var ég sem var að greinast en ekki börnin mín eða foreldrar mínir eða systkini mín. Og annað sem kom mér kannski svolítið á óvart var að ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast. Mér fannst ég vera að bregðast börnunum mínum og nú væri allt einhvern veginn að fara að breytast,“ segir Sólveig í reynslusögu sinni sem birtist í ávekniátaki Krabbameinsfélagsins, Bleiku slaufunni.
Sólveig segir að það hafi hjálpað sér mjög mikið að hitta ráðgjafa hjá Krabbameinsfélaginu. „Það eru svo margir sem upplifa þetta,“ sagði ráðgjafinn. Segir Sólveig að þarna hafi kviknað falleg tilfinning um að hún væri ekki ein.
Sólveig segir reynslusögu sína í spilaranum hér fyrir neðan.