Hljómsveitin Á móti sól fagnar 30 ára afmæli um þessar mundir og ætlar að halda upp á tímamótin með stórtónleikum í Háskólabíói í október.
Í nýjum þætti af hlaðvarpinu Popparasögur rifja meðlimir sveitarinnar, þeir Heimir Eyvindarson og Sævar Þór Helgason, upp þrjátíu ára sögu sem spannar allt frá fyrstu sveitaböllunum og uppfinningu Heimis á Magnúsi umboðsmanni, tilkomu Magna Ásgeirssonar í bandið, vinsældanna í kringum „Spenntur“, 24 íslenskum topplögum, Rockstar SuperNova, dýrustu plötu Íslandssögunnar og þeirrar spurningar hvað taki við eftir afmælistónleikana.
Magnús umboðsmaður
Þegar Á móti sól var stofnuð árið 1995 var draumurinn ekki sérstaklega stórbrotinn. Heimir og Þórir höfðu verið í sveitaballaböndum og markmiðið með nýju hljómsveitinni var fyrst og fremst að komast út að spila, skemmta sér og fá greitt fyrir. „Draumurinn var aldrei neitt annað en það að spila á sveitaböllum,“ segir Heimir.
Það breyttist þó nokkuð fljótt þegar lagið „Djöfull er ég flottur“ kom út árið 1996 og varð vinsælt. Á þeim tíma gat eitt vinsælt lag skipt miklu máli fyrir hljómsveit sem var að reyna að komast inn á markaðinn. „Þegar þú áttir eitt lag þá gastu dálítið farið um landið og fengið inn á staðinn,“ segir Sævar.
Það var hins vegar ekki þannig að síminn hringdi alltaf sjálfur. Heimir tók stundum málin í sínar hendur og þurfti að nota óhefðbundnar leiðir til að ná í gigg. Þegar hann var spurður hvort það sé satt að hann hafi kynnt sig sem Guðmund, umboðsmann Á móti sól, þarf hann að hugsa sig aðeins um áður en hann viðurkennir að sagan sé sönn. „Það var annaðhvort Guðmundur eða Magnús,“ segir Heimir.
Hann man ekki alveg af hverju þetta byrjaði en skýringin er í raun einföld. „Mér fannst þetta eitthvað fyndið sko. Svo bara hélt ég þessu áfram. Það er svona alter ego,“ segir Heimir og bætir við að þegar vertarnir vildu tala við Magnús, umboðsmann, þegar hljómsveitin kom í hús þá urðu þeir alltaf fyrir vonbrigðum enda maðurinn uppspuni frá rótum.
Tveir menn sem reyndust vera Magni
Stuttu eftir að Á móti sól gaf út sína aðra breiðskífu ákvað söngvari sveitarinnar að hætta. Þá var gerð mikil leit að nýjum söngvara og komu ansi margir slíkir í prufu án þess að nokkur væri ráðinn. Heimir var með ákveðinn mann í huga sem honum fannst passa fullkomlega í hlutverkið og var það Gunnar Ólason, söngvari Skítamórals. „En hann var þá í vinsælustu hljómsveit landsins,“ segir Heimir og hlær.
Á endanum heyrðu þeir af tveimur mönnum á Austurlandi sem þeir þyrftu nauðsynlega að skoða. Annar var söngvari í rokkhljómsveit á staðnum og hinn hafði stokkið inn til að syngja heilt ball með Skítamóral vegna veikinda í hljómsveitinni. Eftir að Heimir hóf að rannsaka málið kom fljótlega í ljós að þessir tveir menn voru í raun einn og sami maðurinn. Heimir ákvað því að bjóða honum suður og á æfingu.
Magni Ásgeirsson kom þá á æfingu hjá Á móti sól og kom fljótt í ljós að hann kunni lögin og hafði þann sviðssjarma sem þeir voru að leita að. Þeir þurftu ekki langan tíma til að átta sig á því að hér væri kominn nýr söngvari. „Þetta var náttúrulega ótrúlegt lotterí,“ segir Sævar.
Magni kom inn í september 1999 og er óhætt að segja að hann hafi haft mikil áhrif á sveitina sem flaug hátt eftir innkomu hans. „Við vorum náttúrulega ótrúlega heppnir með hann,“ segir Heimir.
Spenntur vinsælt á einni nóttu
Þegar Magni var kominn í hljómsveitina gerðist margt hratt. Fyrst jólalag, síðan Þjóðhátíðarlag og svo plötusamningur. Á móti sól var komin í allt annað umhverfi en hún hafði verið í nokkrum árum áður og nú var verið að vinna að plötu þar sem þeir voru farnir að hugsa stærra um lagasmíðar, upptökur og útvarpsspilun.
Lagið Spenntur varð fyrsta stóra lagið í nýja kaflanum og þeir höfðu ákveðna trú á því frá upphafi. Lagið var samið af Einari Bárðarsyni og höfðu strákarnir hlustað á rúmlega 70 hugmyndir frá Einari áður en þeir heyrðu hugmyndina sem átti eftir að verða Spenntur.
Þegar Spenntur fór af stað kom svo í ljós að þeir höfðu rétt fyrir sér. Í minningunni virtist lagið hafa slegið í gegn á einni nóttu. Þeir fóru til Noregs á föstudegi til að spila á Þorrablóti Íslendinga í Osló og þegar þeir komu heim á mánudegi var lagið orðið eitt það allra vinsælasta á landinu og náði gríðarlegum vinsældum. Spenntur er enn í dag eitt af allra vinsælustu lögum Á móti sól og eitt af stóru lögum hins svokallaða aldamótatímabils.
Eftir að hafa gefið út tvær vinsælar plötur eftir aldamót ákváðum strákarnir að breyta um stefnu. Þeir höfðu fengið hugmynd sem var að einhverju leyti byggð á plötu frá Bítlavinafélaginu sem heitir 12 íslensk bítlalög. Þeir settust því saman og skrifuðu niður hugmyndir að misgömlum íslenskum dægurperlum sem þeir höfðu áhuga á að taka upp. Eftir þessa vinnu var niðurstaðan alls tólf lög, 12 íslensk topplög.
Platan sló heldur betur í gegn og seldist upp fyrir jólin þrátt fyrir að hafa aðeins komið út í byrjun desember. Síðasta eintakið seldist á Þorláksmessu og viðurkenna strákarnir að salan hefði líklega orðið töluvert meiri hefðu þeir gert fleiri eintök, enda voru þeir ákafir í markaðssetningu og sölu. „Við gengum bara á milli fólks í búðinni og settum diska í körfuna hjá þeim,“ segir Sævar og hlær.
Ári síðar kom svo út platan Hin 12 topplögin og niðurstaðan varð sú sama. Platan varð gríðarlega vinsæl og lögin á þessum báðum plötum lifa enn góðu lífi á tónleikaprógrammi sveitarinnar.
Þeir voru þó ekki tilbúnir að taka öll íslensk og setja sinn stimpil á það. Sum lög voru einfaldlega látin eiga sig. „Við snertum ekki á neinu eftir Magnús Eiríksson,“ segir Heimir í Popparasögum. „Við erum ekkert að fara að taka Ég er á leiðinni. Það er ekkert hægt að gera það neitt betur.“
Magni í RockStar SuperNova
Árið 2006 kom símtalið sem breytti öllu í bili. Magna var boðið í prufur fyrir sjónvarpsþáttinn RockStar SuperNova. Fyrstu viðbrögð strákanna voru í rauninni ekki þau að hann ætlaði að yfirgefa Á móti sól. Hann ætlaði einfaldlega að fara í prufu og sjá hvað gerðist.
Svo fór Magni út til Bandaríkjanna til að taka þátt eins og frægt er orðið. Allt í einu varð erfitt fyrir þá sem heima voru að vita hvað væri að gerast. Samskiptin voru takmörkuð og hljómsveitin þurfti að halda áfram án söngvarans. „Við vorum bókaðir á Humarhátíð og Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og á Sjómannadagsballið á Patreksfirði,“ segir Heimir.
Þeir héldu samt áfram að spila og þegar Magni kom heim eftir að þættinum lauk tóku um 8.000 manns á móti honum í Smáralind. Á móti sól kom fram með honum og þeir upplifðu allt í einu að þeirra eigin söngvari væri orðinn hluti af miklu stærra sjónvarpsævintýri en þeir höfðu nokkurn tíma séð fyrir sér.
Þeir viðurkenna að hafa ekki vitað á þessum tíma hvað yrði. Þeir vissu ekki hvernig Magni myndi nýta þetta tækifæri sem hann hafði fengið eftir velgengnina í þáttunum. En eftir að hann kom heim þurftu þeir ekki að efast lengur enda var svarið hans einfalt. „Hann sagði bara: Ég ætla bara að spila áfram með ykkur,“ rifjar Heimir upp.
Á sama tíma og Magni heillaði heiminn í gegnum sjónvarpið voru aðrir í hljómsveitinni með plötu í vinnslu í Danmörku og þar kom upp nokkuð sérstakt vandamál. Þar var enginn til þess að syngja inn á upptökurnar sem þeir höfðu verið að vinna að. Þeir tóku því upp eigin söng í nokkrum lögum og þegar Magni heyrði upptökurnar síðar varð viðbragðið nokkuð beinskeytt. „Voruð þið í alvörunni að eyða peningunum okkar í þetta?“ segir Sævar og hlær.
Þessi plata varð síðan eitt stærsta verkefni sem Á móti sól hafði tekið sér fyrir hendur. Þeir fóru í tvær ferðir til Danmerkur til að taka upp og kostnaðurinn varð mikill, svo mikill að þeir hafa sjálfir lýst plötunni sem dýrustu plötu Íslandssögunnar.
Afmælistónleikarnir og framtíðin
Í dag er Á móti sól ekki lengur hljómsveit sem þarf að fylla hverja helgi af sveitaböllum. Þeir eru flestir með vinnu og önnur verkefni og tónlistin fær að eiga sinn stað þegar þeir koma saman. Þeir hafa þó haldið áfram að taka upp nýtt efni og skapa og það virðist vera sá hluti sem þeir hafa mest gaman af í dag.
Þeir keyra líka stundum saman á milli staða, eins og þegar þeir fara norður til að spila, þótt það sé ekki endilega vegna þess að það sé einfaldasta leiðin. „Við viljum keyra af því að þetta er bara quality time,“ segir Sævar og bætir við að um sé að ræða hálfgerðan sálfræðitíma að sitja saman í bíl.
Nú er svo komið að þrjátíu ára afmælinu verður fagnað með tvennum tónleikum í Háskólabíói dagana 16. og 17. október þar sem sveitin fær til liðs við sig fleiri tónlistarmenn og söngvara. Þetta verður því ekki alveg sama uppsetning og á venjulegu giggi, heldur eins konar viðhafnarútgáfa af Á móti sól.
Það er ljóst að það er ekkert einfalt að vera fimm manns saman í hljómsveit í þrjá áratugi. Fólk hefur ólíkar skoðanir, ólíka persónuleika og ólíkar hugmyndir um hvert eigi að fara næst. Þeir hafa samt haldið þessu saman. „Við erum í grunninn bara mjög góðir vinir og bara traustir vinir,“ segir Sævar.
Þeir útiloka ekki að Á móti sól verði enn starfandi eftir tuttugu ár og haldi þá upp á 50 ára afmæli, en þeir eru heldur ekki að reyna að ákveða það núna. „Ef við hættum á morgun eða eftir tónleikana í Háskólabíói, þá er það líka bara allt í lagi,“ segir Heimir. Það yrði þá ákvörðun sem þeir tækju saman og enginn færi fúll út úr hljómsveitinni.
Eftir þrjátíu ár virðist það skipta meira máli að sambandið haldist gott en að hljómsveitin verði endilega að halda áfram að eilífu. „Ég hef engar áhyggjur af framtíðinni. Við höfum bara alltaf haft gaman af þessari vitleysu. Því meiri vitleysa, því betra,“ segir Heimir að lokum.