Katrín Lóa Kristrúnardóttir varð fyrir alvarlegri áreitni á bar í Liverpool á Englandi um helgina, þegar hún sagði dyraverðinum hvað gerðist vildi hann ekkert aðhafast. Katrín opnaði sig fyrst um málið á TikTok og segir í samtali við DV:
„Ég upplifði mig mjög óörugga og mér fannst þetta mjög óþægilegar aðstæður, sérstaklega þar sem ég hef lent í svipuðum aðstæðum og er með mál í kerfinu, þá var þetta mjög triggerandi.“
Málefni kynferðisofbeldis er nú aftur í deiglunni vegna Cornell 7-málsins svokallaða, kom fram í Kastljósi gærkvöldi að ellefu hafi leitað til Stígamóta vegna hópnauðgana í fyrra.
Ókunnug kona kom þeim til varnar
Katrín og vinkona hennar voru á bar og á borðinu við hliðina á þeim sátu tíu til tólf karlmenn á þrítugsaldri, flestir í kringum 24 til 26 ára.
Á einum tímapunkti stóð Katrín upp til að fara á salernið. „Þegar ég kom til baka kom kona til okkar og sagði: „Á meðan þú varst að pissa voru þeir að tala um að ef þú værir áfengisdauð þá myndu þeir nauðga þér.““
Konan átti líka í háværum orðaskiptum við mennina og kom dyravörðurinn í kjölfarið. „Við útskýrðum fyrir honum hvað hafði gerst. Hann sagði þá: „Æi, stelpur, ekki vera með þetta vesen.“ Er það vesen að við séum að bregðast við því sem þeir voru að segja? Dyraverðinum fannst það vesen, en ekki að þeir væru að tala um að nauðga stelpu ef hún væri áfengisdauð. Þetta er nákvæmlega hvernig er að vera kona í dag,“ sagði Katrín á TikTok.
Í samtali við DV segir Katrín að hún hafi verið í sjokki yfir því að mennirnir skyldu bara sitja þarna og að þetta væri umræðan á borðinu.
„Ég bjóst við að dyravörðurinn myndi vísa þeim út. Sérstaklega þarna úti er mikið af límmiðum um allt þar sem stendur: „Ef þér finnst þú ekki örugg, komdu á barinn og [láttu vita með því að segja tiltekið orð].“ En dyraverðinum var alveg sama, hann hló bara,“ segir hún.
Af þessum 10 til 12 karlmönnum voru tveir til þrír sem báðu Katrínu afsökunar og sögðust ekki samþykkja hegðun vina sinna.
Katrín ákvað að gefa staðnum umsögn á TripAdvisor í von um að hún myndi rata til eiganda staðarins svo hægt væri að grípa til viðeigandi aðgerða til að tryggja að viðbrögðin verði önnur ef sagan endurtekur sig.
Því miður er þessi upplifun ekki einsdæmi.
„Ég lendi alveg í leiðinlegum aðstæðum líka á Íslandi. Að vera kona í dag, hvort sem það er að fá skilaboð á djamminu eða einhvers staðar úti, mér finnst karlmenn oft leyfa sér að segja það sem þeir vilja. Sérstaklega ef þú ert sæt stelpa sem er stundum í djörfum klæðnaði, þá er eins og hugsunarhátturinn sé: Hún klæðir sig svona, þá má ég tala svona við hana. Sem er svo heimskuleg hugsun, ég lít ekki á það sem opið boð um óviðeigandi komment bara af því að einhver er í stuttbuxum eða lítið klæddur.“