Einar Bárðarson og Baldur Örn Gylfason fara að venju um víðan völl í nýjasta þætti Menn eins og við en ná illa að leyna vonbrigðum sínum yfir nýlegum lista Smartlands yfir hárprúðustu karlmenn landsins. Hvorugur þeirra rataði á listann sem þeim þykir með ólíkindum miðað við þá vinnu sem þeir hafa lagt í hárið undanfarin misseri.
„Við áttum náttúrulega að vera á þessum lista. En látum það liggja á milli hluta,“ segir Einar áður en þeir velta fyrir sér hvort einhverjar annarlegar ástæður geti legið að baki útilokuninni.
„Er þetta eitthvað pólitískt af hverju við erum ekki þarna?“ spyr Baldur og Einar telur jafnvel hugsanlegt að um öfund sé að ræða. Vonbrigðin virðast þó raunveruleg undir gríninu enda hafa báðir gengist undir hárígræðslu og rætt töluvert um hár, hárvörur og árangurinn í þáttunum.
Þeir félagar láta þó ekki nægja að gagnrýna eigin fjarveru heldur fara gaumgæfilega yfir val Smartlands. Nokkrir fá fullt samþykki, þar á meðal Ólafur Ragnar Grímsson, Rúrik Gíslason, Hermigervill og Níels Thibaud Girerd. Gamli hárgreiðslumaðurinn í Baldri vaknar meira að segja til lífsins þegar hann fer að ræða form, krullur og „volíum í rótinni“.
Þeir telja jafnframt að ýmsa sterka kandídata vanti. Þar nefna þeir meðal annars Daníel Ágúst Haraldsson, Högna Egilsson, Unnstein Manuel Stefánsson, Björn Hlyn Haraldsson, Gísla Örn Garðarsson, Helga Björnsson, Bjarna Benediktsson, Gísla Martein Baldursson og Pétur Markan bæjarstjóra Grindavíkur.
„Ég hefði viljað sjá menn leggja aðeins meiri heimavinnu í þennan lista,“ segir Einar. En eigin fjarvera svíður mest.
„Maður er búinn að fara út og leggja allt þetta á sig, alltaf að sýna einhver hármyndbönd og gera það besta fyrir hárið og svo er maður ekki einu sinni á listanum,“ segir Einar.
Baldur segist einfaldlega vera orðinn „lítill í mér“ og félagarnir velta í kjölfarið fyrir sér hvort ekki sé réttast að segja upp áskriftinni að Mogganum.
Þrátt fyrir háráfallið tekst þeim að ræða ýmislegt annað í þættinum. Slátturóbótinn hans Baldurs er loksins kominn í lag eftir langa baráttu, Einar segir frá fjöruhreinsun þar sem fimm og hálft tonn af rusli voru fjarlægð, heimsókn á Black Sand og eftirminnilegum kvöldverði hjá Huga Stefánssyni. Einar fékk einnig persónulega stílráðgjöf í Mango og í miðri upptöku virðist svo um stund sem verið sé að brjótast inn heima hjá Baldri.
Það reyndist sem betur fer aðeins vera heimilisfólk að koma heim.
Hárlistinn stendur hins vegar óleiðréttur og þeir Einar og Baldur enn utan hans.