Ken Urker, kærasti og barnsfaðir Gypsy Rose Blanchard, lést á dögunum 34 ára að aldri. Andlátið hefur vakið athygli þar sem Gypsy Rose er dæmdur morðingi.
Gypsy var dæmd fyrir að hafa hvatt þáverandi kærasta sinn, Nicholas Godejohn, til að myrða móður sína. Hafði Gypsy meðal annars útskýrt fyrir Godejohn að þau gætu aldrei verið saman á meðan móðir hennar væri á lífi, en Dee Dee hafði kúgað dóttur sína allt hennar líf og sannfært hana, ranglega, um að hún væri langveik. Talið er að Dee Dee hafi glímt við heilkenni sem kallast Munchausen by proxy, en hugtakið er oftast notað um foreldra sem ýkja eða beinlínis framkalla veikindi hjá börnum sínum fyrir athygli.
Gypsy var dæmd í 10 ára fangelsi. Henni var sleppt úr fangelsi skömmu eftir jól árið 2023 og gerðist nánast umsvifalaust samfélagsmiðlastjarna eftir að hafa sankað að sér gífurlegum fjölda fylgjenda sem voru forvitnir um líf hennar. Líklega má rekja áhugann að hluta til þess að fjallað hafði verið um mál hennar í sakamálahlaðvörpum, heimildarþáttum og í leiknu þáttunum The Act.
Ekki lét Gypsy fangelsisvistina stöðva ástarlífið. Árið 2018 trúlofaði hún sig en svo slitnaði upp úr því sambandi. Árið 2022 giftist hún svo Ryan S. Anderson en þau skildu fljótlega eftir að Gypsy varð frjáls. Ekki var blekið þornað á skilnaðarpappírunum þegar Gypsy opinberaði nýtt samband, við Ken Urker, sem var einmitt maðurinn sem hún var trúlofuð árið 2018, og tilkynnti að þau ættu von á barni. Þau hættu saman skömmu áður en Urker lést.
Dóttir þeirra heitir Aurora Raina og er 21 mánaðar gömul. Aurora mætti með móður sinni í kistulagningu Urker, sem talið er að hafi látist vegna ofskömmtunar lyfja. Að sögn DailyMail var kistulagningin tilfinningaþrungin. Þegar Aurora litla fylgdi móður sinni að kistunni mun hún hafa þekkt líkið sem föður sinn og sagt: „Pabbi!“.
Fjarverandi í kistulagningunni var systir Urker, Autumn, en hún hefur lýst því fyrir DailyMail að bróðir hennar hafi verið dauðhræddur við barnsmóður sína. Hann óttaðist að dóttir hans væri ekki örugg hjá Gypsy og sakaði barnsmóður sína eins um að hafa niðurlægt sig.
Gypsy Rose greindi fjölmiðlum frá því að Urker hefði ekki verið á góðum stað þegar hann lést. Þau voru hætt saman en Gypsy vonaði þó að sambandsslitin væru tímabundin á meðan Urker væri að taka sig saman í andlitinu. Hann lést á afmælisdegi sínum og fyrr þann dag sendi Gypsy honum afmæliskveðju en fékk ekkert svar.
„Ken var dásamlegur faðir og maður sem var heitt elskaður,“ sagði Gypsy sem segir að Urker verði ávallt sálufélagi hennar. Hann hafi gengið í gegnum miklar raunir og orðið fyrir látlausu níði á samfélagsmiðlum. Engin manneskja eigi að þurfa að þola slíka grimmd. Netníðið hafi reynst Urker þungbært.