Fókus

Klámstjarnan sem endaði á sjúkrahúsi eftir kynlífsmaraþon gengin í hnapphelduna

Mynd
Mynd/Instagram

Ástralska klámstjarnan Annie Knight gekk í hnapphelduna um helgina.

Hún giftist unnusta sínum, Henry Brayshaw, en parið trúlofaðist í mars 2025.

Knight rataði í heimsfréttirnar í maí í fyrra þegar hún endaði á sjúkrahúsi eftir að hafa stundað kynlíf með 583 karlmönnum á sex klukkustundum.

Á sínum tíma var hún spurð út í samband sitt við Henry en þau voru á þessum tíma trúlofuð. Hún sagði hann mjög stuðningsríkan.

„Hann var reyndar í vinnunni þegar viðburðurinn var, en hann hringdi í mig um morguninn, óskaði mér góðs gengis og sagði: „Gerðu okkur stolt, skemmtu þér vel og farðu varlega,““ sagði Annie við Us Weekly í fyrra.

„Hann hringdi síðan í mig um kvöldið og spurði hvernig væri, og ég sagði honum frá öllu saman.“

Þau giftust við fallega athöfn um helgina umkringd fjölskyldu og vinum. Einn brúðkaupsgestur sló á létta strengi þegar hann hélt ræðu:

„Ég vil þakka 30 þúsund sorglegu og einmana karlmönnunum sem borguðu fyrir þetta.“

Hann var þá að vísa í áskrifendur Knight á OnlyFans. News.com.au greinir frá.