Íslendingar sem hafa farið í framhaldsskólanám, sérstaklega þeir af eldri kynslóðinni, þekkja vel þann grimmdarlega sið sem busavígsla er. Það er vígsla nýnema inn í skólasamfélagið.
Þessar athafnir fóru oft úr böndunum og stundum örkumluðust busarnir. En í dag hefur verulega dregið úr offorsi þessara vígslna.
Kyssa svínshaus
„Var busuð 2005. Vorum öll merkt í framan með andlitsmálningu, smalað inn í stofu og látin gera fullt af hreyfingum, pökkuð eins og sardínur í dós og allir gluggar lokaðir, þannig það varð skratti heitt. Svo farið með okkur í gegnum þrautabraut sem endaði með dýfu í slor kari og látin kyssa svínshaus,“ segir ein kona í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit þar sem Íslendingar lýsa sínum busavígslum.
Líkamspartar svína komu oftar við sögu.
„Þegar ég var busaður var einhver sækópati (sem situr inni núna) sem sá um „draugahúsið“ sem var eitthvað sem allir þurftu að skríða í gegn um í myrkri,“ segir einn. „Hann hafði fengið fullt af innyflum úr svínum, svínshöfuð og fullt af gömlum fiski og dreift yfir það allt, það komst upp eftir að stækjan hafði tekið yfir hálfan skólann og það var blessunarlega áður en ég þurfti að fara þangað inn svo ég slapp. Það var rosalegt að sjá þetta.“
Tjarnir vinsælar
Að nota tjarnir hefur verið algengur siður í busavígslum nálægt þeim. Til að mynda hafa nemar við MR, Kvennó og MT (nú MS) notað Reykjavíkurtjörn og Framhaldsskólinn á Laugum tjörnina sem liggur við skólann þar. Annað hvort að ausa vatninu yfir busana eða kasta þeim í tjörnina.
„Kvennó. Ekki séns að að þau væru að fara að ausa vatni úr tjörninni á mig þannig ég ,,missteig" mig,“ segir einn sem slapp við fuglaskitið tjarnarvatnið. „Allir sem var verið busa fóru í stresskast og var hálfvegis bornir inn og fékk Diet Coke, sem var það versta sem gerðist þann daginn.“
„Svo þurfti maður að fara í strætó heim, löðrandi í tjarnarvatni og lyktandi eins og fuglaskítur,“ segir annar.
Sumir nemar fóru jafn vel langar leiðir til að komast í tjarnir.
„Okkur var smalað inn í rútu og keyrt á Stokkseyri þar sem við vorum sett í kajak og fleytt út í einhverja tjörn með engar árar. Þegar við vorum komin á flot var kastað í okkur vatnsblöðrum og alls konar öðru þar til allir höfðu endað ofan í tjörninni. Þegar þessu var lokið var farið í sund og grillað áður en það var farið aftur heim,“ segir einn sem segist hafa verið „nokkuð heppinn.“
Einn næstum drukknaði
Það kom einnig fyrir að busavígslur enduðu beinlínis með hörmungum.
,Í mínum framhaldsskóla missti einn businn putta þegar busarnir voru eknir um á heyvagni,“ segir einn en nefnir að þetta hafi verið um miðjan tíunda áratug síðustu aldar.
Dæmi eru um beinbrot nýnema í busavígslum á Íslandi og mál sem hefðu jafn vel getað endað verr.
„Það var gerður „pittur“ á malarplani sem var fylltur af slori og öðru ógeði, busunum fleygt út í,“ segir einn sem lýsir óhugnanlegu atviki. „Amk í eitt skipti náði einn busi ekki að koma sér úr holunni og drukknaði nánast í hamaganginum. Ég held að eftir þetta voru settar aðeins strangari reglur yfir busun í þessum skóla.“
Hertar reglur
Og þetta var ekki eini skólinn. Fyrir um 10 til 15 árum síðan og jafn vel fyrr fór að draga verulega úr busavígslum. Sums staðar voru þær einfaldlega bannaðar eða þá að skólastjórnendur létu vita að ofbeldi yrði ekki liðið.
„Þegar ég var busaður svona um miðjan 00's áratuginn þá var búið að draga inn seglin svo mikið í mínum skóla að það mátti varla gera neitt. Vorum bara klædd í einhverja skrípabúninga og látinn fylgja uppskálduðum reglum eins og við máttum bara labba með fram veggjunum,“ segir einn sem virðist nokkuð skúffaður með þetta.
„MR upp úr aldamótum. Ég þurfti að leika pylsu að sjóða í svona 15 sekúndur, svo kom ótrúlega fallegur maður í tóga, togaði mig upp og tolleraði. 10/10. Allt ógeð (fiskislor og þannig) var strax þá bannað,“ segir ein kona.