Feðginin Hjalti „Úrsus“ Árnason og Brynja Hlíf Hjaltadóttir sóttu á dögunum saman 903. fund bæjarstjórnar Mosfellsbæjar.
Þetta er nokkur tilviljun þar sem þau bæði eru varabæjarfulltrúar fyrir sína flokka, Hjalti fyrir Miðflokkinn og Brynja fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hefur þetta ekki gerst áður hjá þeim feðginum.
Hjalti er landsþekktur athafnamaður og fyrrverandi aflraunamaður. Brynja dóttir hans starfar sem lögmaður. Þjóðarathygli vakti er hún lenti í alvarlegu mótorkrossslysi í Noregi árið 2014, þá 16 ára gömul, en hún hefur þurft að notast við hjólastól síðan. Hún hefur, líkt og faðir hennar, verið mjög virk í samfélaginu og meðal annars beitt sér í aðgengismálum fatlaðra.
Mynd