Fókus

Eiginkona leikarans lést skyndilega – Hvetur fólk til að taka þessi einkenni alvarlega

Mynd
Isaiah og Jenisa saman árið 2017. Mynd/Getty

Bandaríski leikarinn Isaiah Washington, sem er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt í sjónvarpsþáttunum Grey’s Anatomy, hefur greint frá því að eiginkona hans til 29 ára hafi látist skyndilega í fyrra. Hann hafði fram til þessa haldið andláti hennar frá almenningi.

Washington greindi frá þessu á Instagram um helgina þar sem hann staðfesti orðróm sem hafði verið á kreiki. Eiginkona hans, Jenisa Washington, sem einnig gekk undir nafninu Jenisa Garland, hneig skyndilega niður í maí 2025 og lést 9. júní sama ár.

Washington opnaði sig um þetta á Instagram og hafa bandarískir fjölmiðlar fjallað um málið, þar á meðal NBC News.

„Kom eins og þruma úr heiðskíru lofti“

Washington segir að Jenisa hafi fengið alvarlega heilablæðingu og aldrei náð sér.

„Þetta kom eins og þruma úr heiðskíru lofti fyrir mig og alla fjölskylduna. Hún fékk alvarlegt heilablóðfall af völdum heilablæðingar og náði sér aldrei,“ skrifaði leikarinn.

Hann notaði tækifærið til að beina alvarlegum skilaboðum til fylgjenda sinna og hvatti fólk til að afskrifa ekki þrálátan eða óvenjulegan höfuðverk sem venjulegan höfuðverk eða mígreni.

„Sumir höfuðverkir eru ekki bara höfuðverkir eða mígreni. Þeir geta verið merki um eitthvað miklu alvarlegra og viðvörunarmerki. Farið í myndgreiningu ef þið getið og takið höfuðverk af þessu tagi alvarlega.“

Heilablæðing verður þegar æð í heilanum rofnar og blæðing verður í eða umhverfis heilann. Meðal einkenna geta verið skyndilegur og mjög mikill höfuðverkur, svimi, erfiðleikar við gang, rugl og skyndilegur dofi eða máttleysi.

Hélt andlátinu leyndu í 16 mánuði

Washington segir að hann hafi viljað virða einkalíf eiginkonu sinnar og hún hafi viljað halda því utan sviðsljóssins. Þó hann segi það ekki beint virðist það vera ástæða þess að hann opnaði sig ekki um málið fyrr en núna.

„Jenisa var einstaklega mikið fyrir einkalíf sitt, en ætli ég verði þá ekki bara að taka skammirnar frá henni hinum megin,“ skrifaði hann. „Nú eru liðnir 16 mánuðir frá því hún lést, en hún skildi eftir sig þrjú alveg ótrúleg börn sem halda arfleifð hennar á lofti.“