Fókus

Veru líst ekkert á hugmyndirnar - „Það er smá svona skrítið að heyra það“

Mynd

Fjölmiðlakonan Vera Illugadóttir segir að henni lítist ekkert á hugmyndir sem sumir hafi komið með til hennar um að hún ætti að hætta á RÚV og fara í sjálfstæða framleiðslu á þáttunum hennar vinsælu Í ljósi sögunnar. 

„Það hefur enginn komið með fúlgur fjár og boðist til að sponsa mig eða eitthvað svoleiðis. Ég hef alls konar hugmyndir og sumir segja við mig að ég ætti að hætta á RÚV og gera þetta sjálf, ég gæti grætt milljónir. Það freistar ekki,“ sagði Vera í viðtali í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun. 

„Það er svo skemmtilegt að vinna hérna á Ríkisútvarpinu og svo er ég ofboðslega léleg í peningamálum og öllu skipulagi, ef ég er að gera þetta sjálf þá mundi það örugglega fara lóðbeint á hausinn. Ég kann mjög vel við mig á RÚV og fyrir mér er þetta fyrst og fremst útvarpsþáttur.“

Margir sofna við rödd Veru

Þegar Vera byrjaði að vinna á Rás 1 þá voru hlaðvörp þar álitin bóla. „Ég sá alltaf fyrir mér að vera hér að gera þætti fyrir þrjú gamalmenni sem að hlusta á Rás 1,“ sagði Vera kímin. 

Margir hlusta á Í ljósi sögunnar þegar þeir fara að sofa. „Það eru mjög margir sem að segja þetta. Það er smá svona skrítið að heyra það. Ég var samt búin undir það. Illugi faðir minn er auðvitað búinn að vera með sinn þátt, Frjálsar hendur, í áratugi og hans þáttur var upprunalega seint á sunnudagskvöldum og þegar ég var krakki og var með pabba einhversstaðar þá komu stundum menn og konur og sögðu; „Ég sofna alltaf þegar ég hlusta á þig“. Ég hugsaði; „Þau eru að móðga hann, hvað eru þau að segja að þau sofna við þáttinn sem hann er að leggja vinnu í“. Pabbi sagði að þetta væri mikið hrós að geta svæft fólk með röddinni þannig að ég var búin undir það.“