Starfsfólk á verðlaunuðum bar í Bretlandi neitaði að afgreiða Meghan Markle, hertogaynjuna af Sussex, á dögunum. Ástæðan er sú að því líkaði ekki við hana.
Miðillinn Gloucestershire Live greinir frá þessu.
Markle mætti á barinn The Three Horseshoes í bænum Asthall í Oxfordskíri ásamt frægum vinum sínum, hjónunum Ellen DeGeneres og Portiu de Rossi, þann 21. september. Vakti það athygli að Markle gekk illa að fá afgreiðslu en starfsfólkið hunsaði hana.
The Three Horseshoes er ekki einhver venjuleg sveitaknæpa heldur verðlaunaður og virtur pöbb. Vakti þetta athygli, en Markle hefur ekki verið mjög sýnileg síðan hún, Harry og börnin fluttu frá Kaliforníu til Bretlands í ágúst. Búa þau í Cotswolds, nálægt Oxford. Lítið hefur sést til Harry síðan þau fluttu.
Sjá einnig:
Sniðgekk Vogue Meghan Markle?
„Fólki líkar ekki við hana,“ er haft eftir ónefndum íbúa á svæðinu um Markle. En Markle sást einnig drekka te með vinum á klúbbnum Soho Farmhouse í bænum Chipping Norton norðan við Oxford fyrir skemmstu.
Nefnt er að Markle versli oft í búðinni Daylesford Farm Shop í bænum Moreton-in-Marsh. Er hún sögð fara í taugarnar á íbúum sem eru ekki vanir þessu.
„Hún kemur ásamt hópi lífvarða þegar mest er að gera í versluninni og lætur eins og hún sé mjög mikilvæg,“ er haft eftir öðrum íbúa.