Fókus

Íslandsvinur í fangelsi og niðurlægður af dómaranum – „Ég hef ekki hugmynd um hver þú ert“

Mynd
Ross mætti fyrir dómara í gegnum fjarfundarbúnað úr fangelsinu.

Rapparinn og Íslandsvinurinn Rick Ross er í fangelsi og grunaður um heimilisofbeldi gagnvart fyrrverandi kærustu sinni, Jazzma Kendrick. Dómarinn í málinu sló niður stjörnustæla Ross þegar hann vildi komast fyrr úr fangelsi.

TMZ greinir frá þessu.

Hinn fimmtugi rappari og tónlistarframleiðandi Rick Ross var handtekinn á dögunum og fangelsaður vegna gruns um heimilisofbeldi. Fyrrverandi kærasta hans, hin 39 ára Jazzma Kendrick, hefur greint frá þessu og birt myndir af áverkum eftir barsmíðar hans.

Eins og margir muna kom Rick Ross til Íslands árið 2017 og lék á tónlistarhátíðinni Secret Solstice. Var hann eitt af stærstu atriðunum á þeirri hátíð en hann hefur slegið í gegn með lögum á borð við „Purple Lamborghini“ og „Hustlin“.

Mynd
Kendrick birti myndir af áverkunum á samfélagsmiðlum.

Lögmaður Ross, Bradley Horenstein, bað dómarann Mindy Glazer að flýta lausn Ross úr fangelsi. Það er vegna þess að vegna frægðar hans væri öryggi hans ógnað í fangelsi. En Glazer féllst ekki á það og var fljót að kippa Ross niður á jörðina.

„Ég hef ekki hugmynd um hver þú ert,“ sagði hún. „Þú færð sanngjarna meðferð rétt eins og allir aðrir.“

Er Ross meðal annars sakaður um að slá Kendrick í andlitið, taka hana kyrkingartaki, hrinda henni í gólfið og keyra hana utan í vegg.