Á fyrstu áratugum síðustu aldar voru fluttar inn tvær eimreiðar frá Danmörku og lagðir járnbrautarteinar í Reykjavík til þess að flytja efni til hafnargerðar frá Öskjuhlíðinni. Báðar eru þær til sýnis, eimreiðin Minør á Miðbakka við Gömlu höfnina í Reykjavík og eimreiðin Pionér í sérbyggðu húsi í Árbæjarsafni.
En þó að eimreiðarnar hafi aðeins verið starfræktar í örfá ár, það er dagleg notkun frá 1913 til 1917 og stopul til ársins 1928 þá kostaði verkefnið tvö íslensk mannslíf. Það er tvær ungar stúlkur sem urðu fyrir eimreiðunum og létust.
Fóturinn klipptur af leggnum
Fyrra slysið átti sér stað síðdegis þriðjudaginn 22. ágúst árið 1916 og greint var frá því í Morgunblaðinu degi seinna.
„Járnbrautarlestin rendi á litla telpu fyrir framan Sláturfélagshúsin og varð hún undir gufuvagninum,“ segir í blaðinu. En sláturhúsin voru þar sem núna er Skúlagata 20. „Sneiddi hann af henni annan fótinn fyrir ofan ökla og skemdi hinn fótinn mikið.“
Stúlkan hét Guðlaug Eiríksdóttir, og var ný orðin fjögurra ára gömul. Hún átti heima í Bjarnaborg, húsnæði sem Fátækranefnd Reykjavíkur rak á Hverfisgötu 83, sem er aðeins í nokkurra mínútna göngufjarlægð frá slysstaðnum.
Var aðkoman að slysinu sögð vera skelfileg.
„Fjöldi fólks safnaðist þegar að þangað sem slysið varð og máttu margir eigi tára bindast, því að svo var þetta hryggileg sjón. Hún lá þar í öngviti hjá brautinni, milli hjóla eimreiðarinnar. En hinum megin við brautarteininn lágu tveir ofurlitlir íslenzkir skór og fótur í öðrum. Var sem hann hefði verið kliptur af leggnum.“
Var Guðlaug borin meðvitundarlaus á spítala. Þar reyndi Sæmundur Bjarnhéðinsson, yfirlæknir, að reyna að bjarga lífi hennar. En það tókst á endanum ekki og Guðlaug lést af sárum sínum tveimur dögum seinna.
Bent var á í Morgunblaðinu að fyrir framan sláturhúsin væru skúrar og hús og svo þröngt þar að lestin myndi ekki sjást fyrr en hún kemur. Á þessum stað stað var hlykkur á brautinni.
Fyrir fullorðna væri „engin hætta af þessu.“ Skröltið heyrðist úr fjarlægð og vagnstjórinn þeytti ávallt gufupípuna áður en hann kom. En annað gilti um óvita börn.
„Ætti þetta að vera mönnum alverleg áminning um það að líta betur eftir börnum sínum og láta þau eigi vera ein úti,“ segir í blaðinu.
Náði að bjarga öðru barninu
Hið síðara banaslys átti sér stað þremur árum seinna, snemma dags fimmtudaginn 7. ágúst árið 1919. Um það var einnig fjallað í Morgunblaðinu degi seinna.
„Í gærdag snemma vildi til það slys hér, að eimlest hafnarinnar rann á lítið barn og varð því að bana,“ segir í greininni.
Slysið átti sér stað þar sem lestin kom niður á Hverfisgötuna. En lestin rann neðan úr hlíð þangað niður.
Þennan morgun voru tvö smábörn að leik á járnbrautarteinunum þegar lestin kom aðvífandi með vagna drekkhlaðna af byggingarefni. Vagnstjórinn tók eftir þeim.
„Eimreiðin þeytti pípuna hvað eftir annað en börnin voru slíkir óvitar, að þau höfðu enga hugmynd um það að þau þyrftu að forða sér,“ segir í greininni.
Vagnstjórinn reyndi að hemla en það reyndist enginn hægðarleikur. Bæði vegna þess að lestin var í bratta og með þunga vagna sem ýttu á hana. Vagnstjórinn greip þá til þess örþrifaráðs að stökkva út úr lestinni og hlaupa fyrir framan hana. Hann gat gripið annað barnið en minnstu munaði að hann yrði sjálfur fyrir lestinni.
Hitt barnið varð hins vegar undir lestinni og lést. Það var tveggja ára stúlka að nafni Guðrún Aðalbjörg Elíasardóttir, til heimilis að Barónsstíg 12. Var þetta slys jafn hryggilegt og hið fyrra.
„Fór vagnhjólið yfir hálsinn á því og sneið af höfuðið,“ segir í greininni.
Kom fram að rannsókn eða „réttarhöld“ hafi farið fram samdægurs. Kom þar fram að vissulega hefði verið stigið á báða hemla lestarinnar en það hefði einfaldlega ekki dugað til. Brattinn var of mikill og skriðþunginn vegna hlassins á vögnunum líka.