Fókus

Þessi frægu pör sofa í sitthvoru rúminu – Segja það gera sambandið betra

Mynd
Myndir/Getty

Það þótti eitt sinn skýrt merki um að eitthvað væri að í sambandinu ef hjón eða pör sváfu ekki í sama rúmi. Það viðhorf virðist þó vera að breytast og sífellt fleiri fræg pör hafa talað opinskátt um kosti þess að sofa í sitthvoru lagi.

Fyrirbærið hefur verið kallað „sleep divorce“, eða svefnskilnaður, og hugmyndin er einfaldlega sú að betri nætursvefn geti skilað sér í betra sambandi þegar fólk er vakandi.

Hrotur, sængurstuldur, líkamshiti og ólíkar svefnvenjur fá þá einfaldlega ekki að trufla svefnfriðinn. Daily Mail tók saman nokkur þekkt pör sem talað hafa opinskátt um það að deila ekki sama rúmi.

Ryan Thomas og Lucy Mecklenburgh

Mynd

Leikarinn Ryan Thomas vakti nýlega athygli þegar hann greindi frá því að hann og unnusta hans, Lucy Mecklenburgh, sofi í sitthvoru herberginu á heimili sínu í Manchester. Ástæðan virðist þó ekki vera skortur á ást.

Lucy hefur áður sagt að Ryan hrjóti, tali upp úr svefni og slái hana jafnvel óvart þegar hann sefur. Þegar þau dvelja á minna heimili sínu í London neyðast þau hins vegar til að deila rúmi.

Cameron Diaz og Benji Madden

Mynd

Leikkonan Cameron Diaz hefur gengið hvað lengst í umræðunni og sagði árið 2023 að það ætti að vera fullkomlega eðlilegt að hjón svæfu í sitthvoru herberginu – eða jafnvel byggju í sitthvoru húsinu.

Hugmynd hennar var að hvor aðili ætti sitt hús og fjölskyldan síðan sameiginlegt hús í miðjunni. Það er þó kannski ekki á færi allra fjölskyldna að eiga þrjú heimili, en hvað um það. Hún tók þó fram að hún hefði haft þessa skoðun áður en hún giftist Benji Madden og að eiginmaðurinn væri svo yndislegur að henni liði ekki lengur þannig.

Gwyneth Paltrow og Brad Falchuk

Mynd

Gwyneth Paltrow og Brad Falchuk héldu í sitthvort heimilið fyrst eftir að þau giftu sig. Brad svaf þrjár nætur vikunnar heima hjá sér og fjórar hjá Gwyneth.

Paltrow sagði fyrirkomulagið meðal annars hjálpa til við að viðhalda ákveðinni dulúð í sambandinu og minnti á að makinn ætti áfram sitt eigið líf. Parið flutti síðar alfarið saman.

Baz Luhrmann og Catherine Martin

Mynd

Kvikmyndaleikstjórinn Baz Luhrmann og eiginkona hans, Catherine Martin, hafa meira að segja sofið á sitthvorri hæðinni á heimili sínu.

Luhrmann sagði þau hafa komist að þeirri niðurstöðu að bæði þyrftu sitt eigið rými. Þau hafa þó lagt áherslu á að halda rómantíkinni lifandi og tekið frá laugardagskvöld fyrir stefnumót, gjarnan með kvöldverði og hótelgistingu.

Susannah Constantine og Sten Bertelsen

Mynd

Hjá sjónvarpskonunni Susannah Constantine og eiginmanni hennar, Sten Bertelsen, voru það gamalkunnar hrotur sem bundu enda á dvöl þeirra í sama svefnherberginu.

Constantine sagði þau hafa verið farin að rífast um hvort þeirra svæfi minna og hvort þeirra hryti meira. Að lokum gáfust þau upp og fluttu í sitthvort herbergið. Hún segir ákvörðunina ekki hafa verið merki um að hjónabandið væri í vanda – heldur þvert á móti lausn á vandanum.

Katherine Ryan og Bobby Kootstra

Mynd

Grínistinn Katherine Ryan og eiginmaður hennar, Bobby Kootstra, hafa einnig sofið í sitthvoru herberginu, en þar eru börnin ástæðan. Katherine svaf með dóttur þeirra en Bobby með syninum.

Bobby hefur kallað fyrirkomulagið „maður á mann-vörn“ en viðurkennt að það hafi haft áhrif á nándina í sambandinu. Katherine tók undir það og viðurkenndi að hún saknaði þess að sofa við hlið eiginmannsins.

Suranne Jones og Laurence Akers

Mynd

Doctor Foster-stjarnan Suranne Jones hefur sömuleiðis sagt að það geti gert sambandinu gott að sofa stundum í sitthvoru lagi.

Ef hún sé örþreytt, vilji fara snemma að sofa og hafi engan áhuga á að hlusta á hrotur sé ekkert að því að segja einfaldlega: „Ég þarf mitt eigið rými.“

Að sofa í sitthvoru rúminu þarf því ekki að vera merki um að sambandið sé á endastöð. Hjá sumum pörum virðist góður nætursvefn einfaldlega vera mikilvægari fyrir ástina en að vakna saman í sama rúmi.