Eftir tvær metsölusýningar í Hörpu á síðasta ári snýr vinsælasta ABBA sýning heims Mania: The ABBA Tribute aftur til Íslands og heldur tónleika í Hörpu föstudaginn 4. september og Hofi á Akureyri í fyrsta sinn laugardaginn 5. september.
Mania: The ABBA Tribute er vinsælasta ABBA sýning í heimi og hefur verið sýnd í yfir 35 löndum síðustu tvo áratugi meðal annars í West End í London og Las Vegas. Milljónir gesta hafa skemmt sér konunglega á Mania: The ABBA Tribute. Uppselt var á tónleikana í Shaftesbury leikhúsinu í West End 2021 og á alls 80 sýningum um öll Bandaríkin 2022 og 2023.
Mania: The ABBA Tribute skartar hæfileikaríkum flytjendum og tónlistarfólki sem flytja magnaða og ógleymanlega tónleika til heiðurs hinni goðsagnakenndu sænsku hljómsveit sem hefur fangað hjörtu aðdáenda um allan heim í margar kynslóðir.
Endurskapa síðustu tónleika ABBA
Á tveggja klukkutíma tónleikum mun Mania endurskapa síðustu tónleika ABBA og vekja til lífsins glæsibrag áttunda áratugarins með upplífgandi tónlist og dansi og á köflum hjartnæmum lögum frá hljómsveitinni frægu auk flottrar sviðssetningar, búninga og lýsingu.
Með kraftmiklum söng og óaðfinnanlegri tónlistarkunnáttu verða töfrar ABBA endurskapaðir í öllu sínu veldi.
Á sýningunni verða öll frægustu lög ABBA eins og Mamma Mia, Voulez Vous, Dancing Queen, The Winner Takes It All, SOS, Fernando, Does Your Mother Know, Gimme! Gimme! Gimme!, Waterloo og fleiri.
„Tónlist ABBA er ómótstæðileg, glaðleg og tímalaus. Eldborgarsalurinn var troðfullur á síðustu tveimur tónleikum af áhorfendum í partífíling svo ég hæstánægður að koma með sýninguna aftur til Reykjavíkur og einnig til Akureyrar í fyrsta skipti þannig að fleiri Íslendingar geti notið þessarar frábæru sýningar. Ég er viss um að hljómsveitin mun gleðja áhorfendur á Akureyri eins og annars staðar,“ segir James Cundall, sem stýrir breska framleiðslufyrirtækinu Jamboree Entertainment sem flytur sýninguna til landsins.
„Tónleikarnir eru fullkomnir fyrir alla ABBA aðdáendur sem og nýja kynslóð sem hefur aldrei séð ABBA. Þannig að allir ættu að dusta rykið af búningunum og danstöktunum,“ segir James enn fremur.
Fleiri tónleikar á leiðinni
Jamboree Entertainment kemur einnig með bassa-baritórinn heimsþekkta Sir Bryn Terfel í Hörpu 10. október næstkomandi þar sem hann mun halda stórtónleika. Mánuðinn á eftir munu íslenskir áhorfendur fá tækifæri til að sökkva sér ofan í tugi frægra laga þegar Celebrating George Michael kemur í Hof á Akureyri 20. nóvember og í Hörpu 21. nóvember þar sem söngvarinn Steve Mitchell kemur fram ásamt upprunalegum bassaleikara What!, Dave West.
James Cundall segir að fyrirtæki hans Jamboree Entertainment leggi mikið upp úr því að koma með heimsklassa listamenn til Íslands og er spenntur fyrir að undirbúa fleiri tónleika árið 2027.