Valdís Eiríksdóttir söngkona og útvarpskona og Óskar Logi Ágússon, söngvari og gítarleikari Vintage Caravan eru trúlofuð.
Óskar Logi fór á hnén á Álftanesi í gær meðan á almyrkva stóð og bað sinnar heittelskuðu, sem sagði já.
Mynd
Parið hefur verið saman síðan í lok árs 2023 og eiga soninn Stefán Bjarma sem er á öðru ári.
„Ógleymanlegur almyrkvi,“ skrifuðu þau við mynd sem þau birtu á samfélagsmiðlum.
„Minn fór á hnéð á hámarki almyrkvans! Ótrúleg stund,“ skrifaði Valdís í Instagram-hringrás sinni og birti mynd af unnustanum með syni þeirra. „Bjarmi var að berjast við berjarunna á meðan á þessu stóð og missti af. Honum var alveg sama.“