Fókus

Þetta er æfingarútína Tom Holland þegar hann hefur lítinn tíma

Mynd
Tom Holland.

Breski leikarinn Tom Holland er að eiga gott ár með hlutverk í tveimur af stærstu myndum ársins auk þess að gifta sig.

Fyrr á árinu deildi Holland 20 mínútna æfingu sinni með aðdáendum, æfingu sem hann stundar þegar hann hefur lítinn tíma til æfinga. 

Í viðtali við Men's Health sagði Holland: „Ég geri CrossFit-æfingu sem kallast Cindy. Það eru fimm upphífingar, 10 armbeygjur, 15 hnébeygjur, eins oft og þú getur á 20 mínútum.“

Eins og þessi 20 mínútna CrossFit æfing hljómi ekki nógu svakalega, þá gætu aðdáendur byrjað að svitna þegar þeir heyra met Holland: 

„Ég held að metið mitt sé 27 umferðir.“

Það er semsagt 135 upphífingar, 270 armbeygjur og 405 hnébeygjur. Það eru samtals 810 endurtekningar á 20 mínútum, sem jafngildir að meðaltali yfir 40 endurtekningar á hverri mínútu. 

Að byggja upp slíkt þrek krefst mikils aga.