Kona á þrítugsaldri hefur sagt frá því hvernig sjaldgæf svefnröskun kærasta hennar setti samband þeirra undir gríðarlegt álag. Kærastinn leitaði ítrekað kynferðislega á hana í svefni en mundi ekkert eftir hegðun sinni þegar hann vaknaði.
Konan segir sögu sína í pistli sem birtist á vef Daily Mail undir nafninu Jodie Garraway. Tekið er fram að um dulnefni sé að ræða og að nöfnum og öðrum persónugreinanlegum upplýsingum hafi verið breytt.
Kærasti hennar, sem kallaður er Matt í pistlinum, er talinn glíma við það sem kallað er sexsomnia, sjaldgæfa svefnröskun þar sem fólk sýnir kynferðislega hegðun á meðan það er sofandi. Hegðunin getur meðal annars falist í sjálfsfróun eða tilraunum til samfara og einstaklingurinn man yfirleitt ekkert eftir því þegar hann vaknar.
Fyrstu merkin komu fram
Jodie segir fyrstu merkin hafa komið fram nokkrum mánuðum eftir að þau byrjuðu að búa saman fyrir um tveimur árum. Í byrjun hafi þetta verið tiltölulega saklaust; Matt átti það til að snerta hana þegar hann svaf eða fékk stinningu þegar þau lágu saman í rúminu og hann var sofandi.
„Þótt ég vaknaði við þetta tók ég því sem hrósi – honum fannst ég meira að segja aðlaðandi þegar hann svaf,“ segir hún í pistlinum.
Með tímanum breyttist hegðunin hins vegar og varð mun ágengari. Matt fór að þrýsta sér upp að henni í svefni, leggja fætur yfir hana, grípa um axlir hennar eða mitti og reyna að komast ofan á hana. Síðar reyndi hann einnig að klæða hana úr náttfötunum og snerta hana kynferðislega. Jodie segist hafa getað ýtt honum frá sér og að hún hafi aldrei óttast að hann myndi meiða hana. Hegðunin hafi engu að síður verið mjög truflandi.
Á sama tíma virtist Matt ekki hafa minnstu hugmynd um hvað gerðist á nóttunni. Þegar Jodie spurði hann morguninn eftir hvort hann hefði dreymt eitthvað undarlegt sagðist hann einfaldlega hafa sofið vel.
Svefnleysið fór smám saman að taka sinn toll. Jodie varð pirruð og samband þeirra tók að versna. Hún fór jafnframt að velta fyrir sér hvort hegðunin þýddi að kærastinn væri að dreyma um aðra konu eða laðaðist ekki lengur að henni.
Vaknaði upp við vondan draum
Eitt atvik varð síðan til þess að hún áttaði sig á að eitthvað meira væri á seyði. Hún vaknaði um miðja nótt og sá Matt fróa sér af miklum krafti þótt hann virtist vera steinsofandi. Jodie var eðli málsins samkvæmt mjög brugðið þegar hún varð vitni að þessu og lá vakandi næstu klukkustundirnar og leitaði upplýsinga á netinu. Þar rakst hún í fyrsta sinn á hugtakið sexsomnia.
Morguninn eftir ákvað hún að segja Matt allt sem hafði gengið á undanfarna átján mánuði. Viðbrögð hans voru sterk.
„Hann varð gjörsamlega niðurbrotinn og mjög miður sín,“ segir Jodie. Fyrir utan að hún hafði áður minnst á að hann fengi stundum standpínu í svefni hafði hann enga vitneskju um hegðunina.
Matt brast í grát og sagðist upplifa sig eins og „nauðgara“. Hann spurði ítrekað hvort hann hefði einhvern tíma meitt hana og hvort hann hefði sagt eitthvað á meðan á atvikunum stóð.
„Og svo kom erfiðasta spurningin: Vildi ég enn vera með honum?“
Jodie sagðist hafa svarað því játandi og fullvissað hann um að þau gætu leitað sér aðstoðar.
Ekki hættulegt en getur reynt á sambönd
Þetta hafði ekki bara áhrif á Jodie því áhrifin voru ekki síður mikil hjá Matt sjálfum. Hann varð kvíðinn fyrir því að sofna og spurði kærustuna á morgnana hvort hann hefði snert hana um nóttina. Að lokum fór hann að forðast kynlíf þegar hann var vakandi af ótta við að það gæti ýtt undir enn alvarlegri hegðun síðar um nóttina.
Það hafði aftur áhrif á Jodie, sem upplifði höfnun, og um tíma óttaðist hún að sambandið væri að líða undir lok.
Matt hefur nú leitað til læknis og bíður eftir að komast til svefnsérfræðings. Sexsomnia hlaut viðurkenningu sem svefnröskun árið 2005 en engin ein stöðluð aðferð er til við greiningu hennar. Svefnrannsóknir og frásagnir maka geta meðal annars verið notaðar við greiningu.
Svefnsérfræðingurinn Oliver Bernath segir við Daily Mail að sexsomnia sé í sjálfu sér ekki hættulegt heilsufarsástand, en geti engu að síður reynt verulega á sambönd.
„Áhrifin á pör sem deila rúmi geta verið allt frá pirringi yfir í að fólk neyðist til að sofa í sitthvoru lagi og jafnvel til ásakana um nauðgun,“ segir Bernath.
Áfengi, streita og svefnskortur geta ýtt undir hegðunina en engin ein orsök hefur fundist. Hjá mörgum kemur hún aðeins fram öðru hvoru og hægt getur verið að draga úr henni með reglulegum og heilbrigðum svefnvenjum.
Matt hefur nú dregið úr áfengisneyslu og lagt áherslu á betri svefnvenjur. Að sögn Jodie hefur það skilað árangri. Í stað þess að atvikin eigi sér stað nokkrum sinnum í viku gerist það nú aðeins á nokkurra mánaða fresti.
„Það sem skiptir kannski mestu máli er að kynlífið okkar þegar við erum vakandi – og sambandið sjálft – er komið aftur á réttan kjöl,“ segir hún.
Einn þekktasti svefnsérfræðingur landsins, Erla Björnsdóttir, ræddi sexsomnia í viðtali við Vísi árið 2021 þar sem hún sagði fólk oft feimið við að segja frá þessu. Þess vegna sé mikilvægt að opna umræðuna. Hvatti hún fólk sem grunar að það sé haldið þessari röskun að leita sér aðstoðar hjá svefnsérfræðingum.