Félagarnir Davíð Lúther Sigurðarson, markaðsstjóri Miðbæ Selfoss, og Gunnar Helgason, rifhöfundur, leikari og leikstjóri, hugðu á góðan dag í Langá í Mýrum í gær.
Veiðidagurinn hófst hins vegar ekki betur enn svo að Davíð veiddi fyrst sjálfan sig, þegar hann náði að smella önglinum í ennið.
„Dagurinn gekk bara nokkuð vel…..Mér tókst að veiða sjálfan mig í ennið. Sem betur fer var veiðifélaginn með meiri reynslu af catch & release en ég og náði að losa mig,“ segir Davíð í færslu á Facebook.
Þar birtir hann myndband af því þegar Gunnar, sem fær viðurnefnið Dr. Gunni eftir atvikið, klippir öngulinn af enni Davíðs.
Strákarnir héldu svo ótrauðir áfram að reyna við veiðina:
„Gunni veiddi einn lax, ég því miður engan en missti einn. Það er fiskur um allt en hann var bara tregur að taka í þetta skiptið,“ segir Davíð í samtali við DV. „Ekkert smá fagmannlega gert af Dr. Gunna,“ segir Davíð sem er eldhress eftir atvikið.
Þegar DV heyrði í Davíð var hann nýkominn heim frá undirbúningi á Sólmyrkvaviðburði sem fram fer í Miðbæ Selfoss.
„Hér verður bein útsending á risaskjánum frá klukkan 13 og tónlist spiluð á meðan sólmyrkvinn verður.“