Fókus

Mick Jagger sannar að hann er enn með „hreyfingar Jagger“

Mynd

Söngvarinn Mick Jagger, forsprakki Rolling Stone, hefur í áratugi heillað aðdáendur með sviðsframkomu sinni og danssporum. Og orðinn 83 ára hefur hann ekki misst úr takt eins og sjá má í nýlegu myndbandi Jagger þar sem hann er að skemmta sér á klúbbi.

Á sunnudag birti Jagger myndskeið þar sem hann sést veifa höndunum kröftuglega yfir höfðinu og hrista mjaðmirnar á troðfullu dansgólfi undir diskókúlu á meðan nýtt lag hljómsveitarinnar, Mr. Charm, spilar.

„Er að njóta sumarsins, vonandi gerir þú það líka,“ skrifaði Jagger í myndatexta.

Eftir að myndband Jaggers fór eins og eldur í sinu um netmiðla lofsungu aðdáendur hæfileika hans í athugasemdum við færsluna.

„Ég trúi þessu ekki!! Þú ert algjört undur og munt aldrei hætta að koma okkur á óvart!! Þú ert sönnun þess að ekkert er ómögulegt,“ skrifaði einn notandi á Instagram. „Aldur er bara tíminn sem líður og lífinu ætti að vera lifað dag frá degi með gleði, án þess að þurfa að hugsa um fyrirfram ákveðnar hugmyndir!!“

„Mick er orkumeiri 83 ára en ég er þrítugur,“ sagði annar aðdáandi.

„Enn sé ég marga á aldrinum 30/40 ára segja að þeir séu ekki nógu gamlir til að fara út hahaha,“ sagði einn og annar bætti við, „Og ég er að kvarta yfir mjóbakinu á mér.“

„Þessi grindarholshreyfing á þessum aldri er ótrúleg, einstakur Mick.“ 

„Ég vil lifa eins og Jagger alla ævi.“ 

Sumir aðdáendur vísuðu í skemmtilegar minningar um Maroon 5 og vinsælt lag þeirra, Moves Like Jagger, með Christinu Aguilera frá árinu 2011.

„Vá, elska að sjá Mick hreyfa sig eins og Jagger,“ skrifaði einn aðdáandi.

„Dansaðu eins og Jagger,“ bætti annar við.

Mynd
Jagger á yngri árum.

Lagið Moves Like Jagger kom út í júní 2011 og náði efsta sæti Billboard Hot 100 listans og var tilnefnt til Grammy-verðlauna fyrir besta poppdúett/hljómsveitarframmistöðu á 54. Grammy-verðlaunahátíðinni.

Lagið fjallar um mann sem reynir að heilla konu og laða hana að sér, og notar fræga karismatíska sviðsframkomu Jaggers sem myndlíkingu fyrir sjálfstraust, yfirlæti og rómantískt aðdráttarafl. Í tónlistarmyndbandinu var myndskeið af Jagger að dansa á tónleikum.

 

Í viðtali við NPR í nóvember 2011 rifjaði Adam Levine, söngvari Maroon 5, upp hvernig Jagger var innblásturinn að laginu.

„Aðeins Jagger hefur hreyfingar eins og Jagger,“ sagði Levine. „Það er eitthvað við hreyfingar Jagger sem er einstakt og erfitt að herma eftir, en líka aðgengilegt og kjánalegt og skemmtilegt, og tekur sig ekki of alvarlega.“

Í viðtali við Reuters árið 2024 þakkaði Jagger hreyfingu og góðum genum fyrir að halda sér í formi og sagði að hann æfði tvær dansæfingar í viku ásamt nokkrum æfingum í ræktinni. 

Faðir hans, Basil Fanshawe „Joe“ Jagger, var íþróttakennari og líkamsræktarþjálfari sem lifði til 93 ára aldurs.

Þegar Jagger var spurður hvernig hann fyndi orkuna til að dansa í gegnum tveggja tíma tónleika Rolling Stones sagði hann: „Mér finnst það bara æði. Ég elska bara að gera þetta. Þú er að ná tengslum fram og til baka við áhorfendur. Þú sérð að þeir skemmta sér vel, þú skemmtir þér vel og það gefur þér miklu meiri orku.“

Í síðasta mánuði gáfu Rolling Stones út nýjustu stúdíóplötuna sína, Foreign Tongues, sveitin hefur ekki tilkynnt um tónleikaferðí kjölfar plötunnar, þó að Jagger hafi lýst von sinni um að hljómsveitin muni snúa aftur á svið árið 2027.