Fókus

Harry Potter-stjarnan slær í gegn á OnlyFans – Þetta þénaði hún á einum degi

Mynd
Jessie gerir það gott á OnlyFans. Mynd/Getty

Leikkonan Jessie Cave, sem er þekktust fyrir hlutverk Lavender Brown í Harry Potter-myndunum, segist hafa þénað meira á einu ári á OnlyFans en hún fékk greitt fyrir allan leikferil sinn fram að því.

Cave, sem er 39 ára og fjögurra barna móðir, greinir frá þessu í viðtali við The Times. Hún segir ákvörðunina um að stofna OnlyFans-aðgang hafa komið eftir erfitt tímabil þar sem lítið var um leiklistarverkefni og fjárhagsstaða fjölskyldunnar orðin erfið.

Hún lýsir því að hafa verið komin á vonarvöl og ekki haft efni á að fara í nám til að skipta um starfsvettvang. Þá taldi hún hefðbundin láglaunastörf heldur ekki raunhæfan kost vegna kostnaðar við barnagæslu sem myndu éta upp stóran hluta launa hennar.

Ekki klámfengið efni

Í mars 2025 ákvað Cave að prófa OnlyFans. Hugmyndin var upphaflega aðeins að afla sér aukatekna í nokkra mánuði á meðan hún reyndi að ákveða næstu skref.

„Ég hélt að ég myndi þéna fimm þúsund pund, vera þarna í nokkra mánuði og það myndi gefa mér tíma til að átta mig á því hvað við ætluðum að gera,“ segir hún.

Raunin varð allt önnur.

„En nú er liðið meira en eitt og hálft ár og þetta hefur í raun bjargað lífi okkar.“

Efni Cave á OnlyFans er ekki klámfengið. Hún hefur þess í stað fundið sér afar sérstakan sess þar sem sítt hár hennar, sem nær niður að mjöðmum, er í aðalhlutverki.

Hún birtir meðal annars myndbönd þar sem hún greiðir hárið og bregður sér stundum í hlutverk persóna, þar á meðal Lavender Brown úr Harry Potter.

„Reglan mín er sú að hárið sé í aðalhlutverki. Þannig réttlæti ég þetta,“ segir Cave. „Þetta snýst bókstaflega um hár, áferð hársins og blætið. Þetta er mjög, mjög afmarkað.“

Þénaði 15 þúsund pund á einum degi

Áskrift að síðu Cave kostar sex Bandaríkjadali á mánuði en hún aflar einnig tekna með skilaboðum sem áskrifendur greiða sérstaklega fyrir.

Tekjurnar hafa farið langt fram úr björtustu vonum hennar. Cave segist eitt sinn hafa þénað 15 þúsund pund, tvær og hálfa milljón króna, á einum degi og á einu ári hafi tekjurnar af OnlyFans orðið meiri en samanlagðar tekjur hennar af leiklist fram að því.

Cave fékk hlutverk Lavender Brown í Harry Potter and the Half-Blood Prince eftir opna áheyrnarprufu þar sem um sjö þúsund stúlkur sóttust eftir hlutverkinu. Hún hefur síðan meðal annars komið fram í Call the Midwife, Industry, Black Mirror, Buffering og Trollied.

Þrátt fyrir velgengnina á OnlyFans veit Cave ekki hversu lengi hún heldur áfram. Hún vill ekki birta grófara kynferðislegt efni og segir reglulega koma beiðnir frá áskrifendum um „viðbjóðslega hluti“ sem geti tekið á hana.

Hún telur þó að fleiri listamenn kunni að feta sömu braut. Tónlistarkonurnar Kate Nash og Lily Allen hafa til að mynda báðar rætt opinberlega um að hafa nýtt OnlyFans til að afla tekna samhliða tónlistarferli sínum.