Fókus

Gerði stólpagrín að barnafjölda stórleikarans

Mynd
McGregor og Hathaway.

Leikararnir Anne Hathaway og Ewan McGregor mættu á mánudag í þátt Jimmy Kimmel Live! Til að kynna nýjustu mynd sína, The End of Oak Street, sem kemur í kvikmyndahús í þessari viku.

Þegar McGregor (55), staðfesti að hann ætti fimm börn spurði gestakynnirinn Anthony Anderson: „Ert þú mormóni?“ Hathaway sprakk úr hlátri þegar hann sagði: „Nei.“

Anderson sneri sér að áhorfendum og sagði: „Hann var bara svona: Nei, mér finnst bara gaman að r…. mikið.'“

Hann baðst afsökunar á meðan Hathaway, sprakk aftur úr hlátri og þurrkaði tárin áður en hún spurði: „Hverjum finnst það ekki gaman?“

 

Seinna í viðtalinu gerði Anderson grín að „barnafjölda“ McGregor.

McGregor á fjögur börn: Clara, 30 ára, Jamyan, 25 ára, Esther, 24 ára, og Anouk, 15 ára með fyrrverandi eiginkonu sinni Eve Mavrakis, og soninn Laurie, fimm ára, með núverandi eiginkonu sinni Mary Elizabeth Winstead.

McGregor skildi við Mavrakis, leikmyndahönnuð, í maí 2017, sama mánuði og hann og Winstead, voru mynduð í kossaflensi. McGregor og Mavrakis, sóttu um að slíta 22 ára hjónabandi sínu í janúar 2018 og skilnaði þeirra var lokið árið 2020. McGregor og Winstead eignuðust soninn í júní 2021 og giftu sig í apríl árið eftir.

Mynd
Mavrakis og McGregor árið 2012.

Elsta barn McGregor gagnrýndi ástarsamband föður síns harðlega í athugasemd á Instagram árið 2019. Eftir að Clara birti mynd af mömmu sinni í bikiní svaraði hún brandara aðdáanda um að „halda henni frá kærustunum þínum“ með: „Ég held henni frá kjánalegum mönnum sem yfirgefa gyðjuna sem móðir mín er.“ Hún kallaði einnig Winstead „rusl“, yfirlýsing sem hún viðurkenndi síðar að „væri ekki hennar besta stund“.

Mynd
McGregor og Winstead ásamt syni þeirra, og þremur dætra McGregor árið 2024.

Clara útskýrði fyrir Times árið 2018: „Það hafði verið mikill undirbúningur og margt að takast á við, ég er ekki að afsaka mig samt. Ég er ekki hrædd við að tjá mig ef mér finnst eitthvað kalla á það. Þetta var ekki rétta leiðin til að fara að hlutunum,“ hélt hún áfram. „En það er erfitt að skilja þegar maður hefur fengið þessa hugmynd um hvað fjölskyldan er og svo verður þessi breyting á henni. Það er mjög skrýtið.“