Bandaríska leikkonan Anne Hathaway hefur svarað þeim furðulega orðrómi sem fór á flug á samfélagsmiðlum um helgina þess efnis að óléttukúla hennar væri ekki raunveruleg.
Hathaway, sem er 43 ára og á von á sínu þriðja barni með eiginmanni sínum Adam Shulman, mætti á frumsýningu nýjustu kvikmyndar sinnar, The End Of Oak Street, í Los Angeles á sunnudag.
Leikkonan klæddist þar ljósbláum silkibol frá Prabal Gurung og lágum gallabuxum sem skildu óléttukúluna eftir bera. Klæðnaðurinn vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum en fljótlega fór umræðan að snúast um allt annað.
Fjöldi notenda á TikTok velti því fyrir sér hvort óléttukúla Hathaway væri hreinlega gervi.
„Af hverju lítur þetta út fyrir að vera gervi?“ spurði einn notandi í athugasemd sem fékk nærri sex þúsund læk.
Annar tók í sama streng og fullyrti að sjá mætti líkamsfarða á kvið leikkonunnar. Aðrir komu Hathaway hins vegar til varnar og bentu á að óléttukúlur væru jafn misjafnar og þær væru margar.
Hathaway virðist sjálf hafa tekið vangaveltunum með léttúð. Í gær birti hún myndskeið frá undirbúningi frumsýningarinnar þar sem meðal annars mátti sjá stílista festa gervihár við hár hennar.
„Gervihár, alvöru kúla,“ skrifaði Hathaway við færsluna og gerði þannig lítið úr orðróminum.
Hathaway greindi frá því fyrr í sumar að hún og Shulman ættu von á sínu þriðja barni. Hjónin, sem gengu í hjónaband árið 2012, eiga fyrir synina Jonathan, tíu ára, og Jack, sex ára.
Leikkonan hefur verið hreinskilin um að tíðindin hafi komið þeim hjónum skemmtilega á óvart. Í viðtali við Late Night with Seth Meyers í júlí sagðist hún vart hafa trúað því að tilraunir þeirra til að eignast annað barn hefðu borið árangur.
„Við erum himinlifandi vegna þess að við vitum af eigin reynslu að þetta er ekki eitthvað sem allir fá að upplifa, og alls ekki endilega þegar þeir óska sér þess – stundum gerist það aldrei,“ sagði Óskarsverðlaunaleikkonan.