Fókus

Baywatch-stjarna mætir á OnlyFans og lofar fullt af fótamyndum

Mynd

Þeir sem komnir eru á ákveðinn aldur muna vel eftir Strandvörðunum sem hlupu létt- og rauðklæddir um strendur Kaliforníu og björguðu mannslífum. Leikararnir voru allir líkt og módel í útliti og limaburði og öðluðust heimsfrægð fyrir hlutverk sín.

Ein þeirra sem lék í þáttunum er Erika Eleniak, sem nú, 56 ára gömul, er að ganga til liðs við OnlyFans og segist hún aðspurð munu svara tíðum beiðnum um myndir af fótum sínum.

„Ég ólst í raun upp á ströndinni í rauðum sundfötum, svo mér líður eins og hringnum sé lokað, nema núna er það ég sem ræður ferðinni,“ sagði leikkonan við TMZ á mánudag um ákvörðun sína að stofna aðgang á OnlyFans.

„Aðdáendur fá að sjá raunveruleikann minn, persónulegar myndir og myndbönd, fullt af strandardögum og fæturna sem allir eru að spyrja um.“

Mynd

Eleniak lofar einnig filterslausu efni: „Ég hef verið Erika úr Baywatch í áratugi, en OnlyFans færir mér hlið sem fólk hefur ekki séð áður,“ lagði hún áherslu á. „Það er persónulegt, skemmtilegt og ófilterað, og ef þú komst til að fara berfættur í sandinn, þá lofa ég að þú verður ekki fyrir vonbrigðum.“

Eleniak birti færslu um nýja starfsferilinn á Instagram á mánudag og vísaði til fortíðar sinnar, þar á meðal að birtast í tímaritinu „Playboy“.

„56 ára gömul er ég að fagna því nákvæmlega hver ég er í dag,“ skrifaði hún. „Frá Baywatch til Playboy og allt þar á milli, þið hafið verið með mér í gegnum svo marga kafla í lífi mínu og ferli. Nú er ég að opna glænýjan kafla. Þetta snýst um að hafa gaman, vera ófilteruð, deila einkamyndum og myndböndum og síðast en ekki síst, tengjast beint við ÞIG.“

Mynd

Eleniak lék Shauni McClain í fyrstu og annarri þáttaröð Baywatch frá 1989 til 1992.

Hún mun leika í endurræsingu þáttaraðarinnar Baywatch á Fox sem kemur út í janúar,  þar sem Brooks Nader, Stephen Amell, Livvy Dunne og fleiri fara með aðalhlutverk. Persóna Eleniak er nú borgarfulltrúi í Santa Monica sem snýr aftur á ströndina til að hjálpa til við að hefja árlegu Strandleikana milli ríkjandi meistara Baywatch og Landhelgisgæslunnar.