Flestir foreldrar kannast líklega við að hafa ekki getað komist í gegnum daginn, jafnvel eina klukkustund, án þess að heyra lagið Baby Shark hljóma úr hverju horni. Jafnvel bara við að lesa þessa setningu dynur lagið í höfðinu á þér.
Park Geon Roung er drengurinn sem sex ára gamall lék í myndbandinu við lagið sem kom út árið og varð barnastjarna á einni nóttu, þekktur sem Baby Shark Boy.
Hin 10 ára kóresk-ameríska söngkona Hope Segoine söng lagið sem kom út árið 2015, og ásamt henni og Roung kom Elaine Kim Johnston frá Nýja-Sjálandi fram í myndbandinu. Lagið sló í gegn og komst í 32. sæti á bandaríska Billboard Hot 100 listanum og í 6. sæti á breska smáskífulistanum. Í kjölfarið fylgdi alls konar Baby Shark efni, sjónvarpsþættir á Nickelodeon, leikföng, bækur og fleira.
Nú 11 árum seinna er Roung 17 ára gamall og ætlar sér aftur fram í sviðsljósið og gefur hann sína fyrstu smáskífu út 20. ágúst á kóresku og heitir lagið Wave. Lagið samdi hann sjálfur og í laginu kemur fram Joohoney, úr vinsælu K-pop strákahljómsveitinni Monsta X.
„Ég hef alltaf verið þakklátur fyrir að fólk muni enn eftir myndbandi sem ég lék í sem krakki. Fyrir tíu árum dansaði ég við hliðina á Baby Shark. Nú vil ég deila minni eigin rödd og sögu sem ég skrifaði sjálfur,“ sagði Park í yfirlýsingu. „Þetta snýst ekki bara um að endurvekja drenginn úr myndbandinu,“ sagði fulltrúi útgáfufyrirtækisins. „Þetta snýst um að hann segi sína eigin sögu og við viljum halda þessari nýju byrjun áfram á ósvikinn hátt.“