Fókus

John Goodman nær óþekkjanlegur eftir svakalegt þyngdartap

Mynd
John Goodman á árum áður. Mynd/Getty

Leikarinn John Goodman hefur vakið mikla athygli fyrir mikla breytingu á útliti sínu en hinn 74 ára gamli Hollywood-leikari er talinn hafa misst um 90 kíló á undanförnum árum.

Goodman, sem er hvað þekktastur fyrir hlutverk sín í kvikmyndum á borð við The Big Lebowski og Argo, hafði glímt við ofþyngd stóran hluta ævinnar. Þegar hann var sem þyngstur er talið að hann hafi verið tæp 180 kíló og hefur hann því misst um helming líkamsþyngdar sinnar.

Árangurinn kom þó ekki á einni nóttu eins og fram kemur í umfjöllun VT.co.

Goodman hefur unnið að því í meira en áratug að breyta lífsstíl sínum og hefur meðal annars hætt að drekka áfengi, dregið úr sykurneyslu, breytt mataræðinu og gert reglulega hreyfingu hluta af daglegu lífi.

Goodman hefur í gegnum tíðina rætt opinskátt um baráttuna við aukakílóin og óheilbrigðar matarvenjur.

„Það þarf heilmikla sköpunarorku til að sitja á rassinum og velta fyrir sér hvað maður ætlar að borða næst,“ sagði Goodman í samtali við People árið 2010.

„Mig langaði að lifa lífinu betur.“

Sex árum síðar lýsti hann því í viðtali við ABC hvernig hann hefði á endanum fengið nóg.

„Ég varð bara þreyttur, dauðþreyttur á því að horfa á sjálfan mig. Maður er að raka sig fyrir framan spegilinn og vill ekki horfa á sjálfan sig. Þetta verður hættulegt.“

Goodman hafði áður gert fjölmargar tilraunir til að léttast og náði stundum miklum árangri á skömmum tíma. Vandamálið var að hann féll jafnharðan aftur í gamla farið.

„Í gamla daga tók ég þrjá mánuði í þetta, missti 20-30 kíló og verðlaunaði mig svo með sex bjórum eða einhverju álíka og fór einfaldlega aftur í gömlu venjurnar.“

Í þetta sinn ákvað hann því að fara hægar í sakirnar og gera varanlegar breytingar á lífsstílnum. Eitt mikilvægasta skrefið var að hans sögn einfaldlega að hætta að vera sífellt að borða eða narta.

Hreyfing varð einnig sífellt stærri hluti af lífi leikarans.

„Núna vildi ég gera þetta hægt, vera á hreyfingu og æfa. Ég er kominn á þann aldur að ég hef ekki lengur efni á því að sitja kyrr. Þetta gefur mér líka orku til að vinna, því vinnan getur verið mjög krefjandi.“

Goodman hefur nú haldið breyttum lífsstíl sínum til fjölda ára og er útlit hans í dag gjörbreytt frá því sem aðdáendur hans muna eftir frá fyrri hluta ferilsins.

Þrátt fyrir að vera kominn á áttræðisaldur er Goodman enn að störfum og hefur hvergi nærri lagt leiklistina á hilluna. Myndin hér að neðan var tekin í mars síðastliðnum á forsýningu myndarinnar Chili Finger.

Mynd