Landinn er duglegur við að skamma aðra fyrir slælega ökumennsku og illa lagða bíla en það er afar sjaldgæft að einhver gefi sig sjálfur fram og það með afsökunarbeiðni líkt og Oliver nokkur gerði í Facebookhópnum Verst lagði bílinn. Í þeim fjölmenna hópi er yfirleitt einhver sem birtir mynd af illa lögðum bíl og fólk getur svo keppst við að kalla viðkomandi öllum illum nöfnum. Í þetta sinn var það þó Teslueigandinn Oliver, sem má mögulega kalla samviskusamasta ökumann landsins, sem steig fram:
„Ég fór í Bónus í Norlingaholti í dag og þegar ég kom út áttaði ég mig á því að ég hafði lagt í stæði sem er ætlað fyrir hleðslu rafbíla. Ég tók einfaldlega ekki eftir því þegar ég lagði og stæðið var alls ekki greinilega merkt að mínu mati. Ég hefði að sjálfsögðu ekki lagt þarna ef ég hefði áttað mig á því,“ segir Oliver í færslunni sem hefur vakið mjög mikla athygli.
„Mér finnst þetta mjög leiðinlegt og skammast mín fyrir að hafa tekið frá stæði sem einhver annar þurfti mögulega á að halda. Þetta var alls ekki viljandi og ég vil bara biðjast innilega afsökunar á þessu. Ég tek þetta sem áminningu um að vera enn betur vakandi þegar ég legg bílnum.“
Má segja að athugasemdirnar hafi fyrst og fremst snúist um þá furðu að stíga fram með þessum hætti og viðurkenna mistök fyrir alþjóð.
Magnea nokkur segir einfaldlega: „Með hjarta úr gulli.“
Jón nokkur bætti við: „Allt of fáir í umferðinni sem kæmu með svona.“
Nefndu nokkrir að það sé skiljanlegt að Oliver hafi ruglast þar sem stæðið var ekki málað sérstaklega. Þá sagði María nokkur:
„Held þetta sé lengsta afsökunarbeiðni sem nokkuð bílastæði hefur fengið.“