Tónlistarparið Rihanna og A$AP Rocky fá púls áhorfenda til að slá hraðar í myndbandi sem fer eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla.
Parið sótti Grand Kadooment-daginn 3. ágúst, einn stærsta karnivalviðburð Barbados, heim, en dagurinn er haldinn hátíðlegur fyrsta mánudag í ágúst ár hvert. Parið fór í skemmtisiglinguna Aura SOS og skemmtu sér konunglega eins og sjá má í myndbandinu.
Í því sést Rihanna twerka og beygja sig á lokkandi hátt. A$AP tekur þátt í leiknum. Þau skellihlæja síðan og hoppa upp og niður í takt við tónlistina.
„Búmm ... nú er hún ólétt,“ grínaðist einn netverji, en parið á tvo syni og eina dóttur á aldrinum eins til fjögurra ára.
A$AP Rocky and Rihanna turning up in Barbados as the crowd cheers them on. 😂 https://t.co/5ooJeBnJ5J
— No Jumper (@nojumper) August 5, 2026
Aðrir grínast með viðbrögð manns sem stendur við hlið þeirra.
„Þessi sköllótti gaur lítur út fyrir að vera öfundsjúkur,“ sagði einn netverja.
Í nýlegu viðtali kjaftaði A$AP af sér og sagði að Rihanna væri formlega komin aftur í stúdíó. „Djöfull, ég lendi í vandræðum út af þessu,“ sagði hann og neitaði því að parið myndi gefa út plötu saman.
„Enginn vill heyra okkur saman! Ég geri byltingarkennt, skrýtið indie-rapp. Tónlistin sem ég geri er fyrir sérhæfðan hóp fólks sem skilur hana.“