Slúðurbloggarinn frægi, Perez Hilton, var fluttur á sjúkrahús á dögunum eftir að hafa stundað sjálfsskaða í beinni útsendingu á TikTok. Að sögn erlendra miðla stóð útsendingin yfir í um korter en þar stóð bloggarinn nakinn og virtist skera sjálfan sig ítrekað með stórum hníf.
Fjöldi fólks hafði samband við yfirvöld vegna útsendingarinnar og fór fjölmennt teymi lögreglu að heimili bloggarans í Miami og flutti hann þaðan á sjúkrahús til aðhlynningar.
Ljóst er að bloggarinn glímir við andleg veikindi en sumir vilja tengja þau við blóðsýkingu sem hann glímdi við fyrr á þessu ári, en þekkt er að fólk geti endað í geðrofi í kjölfar slíkra veikinda.
Perez býr í Miami með móður sinni og þremur börnum sem hann eignaðist með aðstoð staðgöngumæðra. Fjölskylda bloggarans hefur nú sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins þar sem hún þakkar fyrir stuðninginn á þessum erfiða tíma. Eins er tekið fram að systir Perez og systurdóttir hafi verið í heimsókn á heimilinu áður en beina útsendingin hófst og þegar þeim varð ljóst að Perez var að glíma við alvarleg andleg veikindi og sjálfsskaða hafi þær fjarlægt börn bloggarans af heimilinu til að hlífa þeim.
„Okkar helsta forgangsmál núna er að hjálpa börnunum að jafna sig eftir þessa reynslu,“ segir í yfirlýsingunni en fjölskyldan óskar eftir því að fjölmiðlar, ljósmyndarar og áhrifavaldar hætti að sitja fyrir heimili bloggarans svo börnin geti snúið aftur á heimili sitt með öruggum hætti.
Perez mun nú vera fær um að tjá sig og er fjölskyldan vongóð um að hann nái bata.
TikTok hefur beðist velvirðingar á því að sjálfvirk greiningartæki miðilsins hafi ekki náð að rjúfa útsendinguna fyrr en að korteri liðnu. Á þessum tíma náðu margir að afrita hluta útsendingarinnar og eru myndskeið í dreifingu á samfélagsmiðlum.
Heimildarmaður DailyMail, sem mun þekkja til fjölskyldunnar, segir að Perez sé að ganga í gegnum miklar þjáningar.
„Hann er sárkvalinn maður. Ég held að nú sé hann að einblína á það líkamlega en þetta tengist allt saman. Enginn á skilið að ganga í gegnum þessar kvalir sem hann glímir við.“
Heimildarmaðurinn segir að Perez geti nú tjáð sig en sé þó ekki búinn að átta sig á því sem gerðist. Hann sé enn veikur og eigi nokkuð í land. Atvikið hafi komið sem þruma úr heiðskíru lofti þar sem ekkert í fari bloggarans hafi bent til þess hvað væri í vændum. Þvert á móti hafi Perez verið spenntur fyrir framtíðinni. Hann var nýfluttur frá Las Vegas til Miami og var með mörg spennandi verkefni á prjónunum. Flutningarnir hafi þó verið erfiðir og eins hafi Perez glímt við líkamleg veikindi og þurft í tvígang að leggjast inn á sjúkrahús á árinu með tilheyrandi lækniskostnaði. Eins hafi bloggarinn átt erfitt með að horfast í augu við að bloggið hans væri ekki eins vinsælt og það var fyrir rúmum áratug. Nú hafi miðlar eins og TikTok og YouTube tekið við keflinu af slúðurbloggum en Perez hefur ekki vegnað eins vel í myndbandagerð.
Perez heitir réttu nafni Mario Armando Lavandeira Jr. Hann byrjaði að blogga skömmu eftir aldamótin eftir að hann lauk háskólanámi. Bloggið varð fljótt vinsælt þar sem Perez leyfði sér þar að níða skóna af mörgum þekktum stjörnum Hollywood. Níðið gekk oft nærri stjörnunum sem hafa jafnvel vísað til Perez í list sinni, svo sem í laginu Pedestal með Fergie. Raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian hefur lýst Perez sem eineltishrotta og tónlistarkonan Lady Gaga hefur sakað hann um umsáturseinelti.
Perez hefur svo verið dreginn fyrir dóm fyrir skrif sín, svo sem fyrir að leka óbirtri tónlist söngkonunnar Britney Spears, fyrir að deila slóð á kynlífsmyndband leikarans Colins Farrels, fyrir að deila nektarmyndum af leikkonunni Jennifer Aniston og fyrir að stela höfundavörðu efni frá fréttamiðlum, blaðamönnum og öðrum bloggurum. Eins hefur Perez verið harðlega gagnrýndur fyrir að neyða samkynhneigðar stjörnur út úr skápnum, svo sem tónlistarmanninn Lance Bass úr drengjasveitinni NSYNC og leikarana Neil Patrick Harris og Matt Bomer.
______________
Í þessari frétt er fjallað um sjálfsskaða. Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir eða hugsanir um sjálfsskaða er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.