Fókus

„Sumt af þessu verður ekki túlkað öðruvísi en sem hatur, því miður“

Mynd
Myndin er samsett. Myndefni: Facebook.

Hinsegin dagar ná hámarki á morgun, laugardag, með Gleðigöngunni, sem fer af stað kl. 14 frá Hallgrímskirkju, en viðburðurinn hefst kl. 13.

Eitt af mörgum verkefnum sem þessum stóra viðburði fylgja er að gæta öryggis í kringum vagnanna sem ekið er eftir götum miðborgarinnar. Jóhannes Þór Skúlason hvatti þá sem hafa áhuga á að sinna þessu hlutverki að hafa samband við sig, í stuttri tilkynningu á Facebook-síðu sinni. DV hafði samband við hann til að forvitnast örlítið um þetta öryggishlutverk, sem og um stemninguna fyrir þessum mikla, árlega viðburði. 

„Þetta er alltaf svona. Það eru bílar í göngunni og það hefur verið þannig í fjölda ára að það er fólk sem gengur við hliðina á dekkjunum svo enginn verði ekki undir þeim. Hinir og þessir taka þetta að sér. Þetta snýst um að vera í vesti og sjá til þess að áhorfendur séu ekki mikið að hoppa inn í, þegar verið er að taka beygjur, sjá til þess að allt sé eins og það á að vera. Þetta hefur bara gengið afskaplega vel.“

Sp: Þetta gengist þá ekki vörn gegn áreiti á gönguna? 

„Nei, tengist því ekki neitt. Þetta snýst um að tryggja öryggi gestanna gagnvart göngunni, ekki öfugt,“ segir Jóhannes og hlær. „Sem og öryggi göngufólks. Bara tryggja að enginn verði undir.“

Jóhannes segist eiga von á mikill þátttöku í göngunni að þessu sinni: 

„Við eigum von á töluverðri þátttöku. Þetta stefnir í stærstu göngu allra tíma hér. Það voru 38 hópar sem tóku þátt í göngunni í fyrra og þeir verða 50 í ár. Þannig að það er mikill áhugi og sýnir kannski hvernig styrkurinn kemur fram í stuðningnum þegar kannski blæs á móti. Fólk ætlar að standa keikt og taka þátt í gleðigöngunni í ár og við eigum von á að það verði mikill fjöldi fólks í miðbænum, sérstaklega ef veðrið verður gott við okkur.“

Þess má geta að veðurspáin fyrir laugardag er sem stendur nokkuð góð, það stefnir a.m.k. í þurrviðri. 

Vaxandi andstreymi en ósigrandi gleði

„Það er frábært að sjá hvernig þetta lyftir stemningunni í borginni og í samfélaginu öllu. Samstaðan og gleðin sem fylgir þessu þó að auðvitað sé líka róttæk gleði í þessu, að minna á að hér er alvöru baráttu fyrir mannréttindum um að ræða, ekki bara partý, sko. En við gerum það í gegnum gleðina.“

Sp: Finnst þér andstreymið hafa farið vaxandi undanfarin ár?

„Já,já. Það hefur gert það, alveg klárlega, og ég held að fólk þurfi ekki að gera annað en að fletta upp á samfélagsmiðlum, kommentum undir fréttum til dæmis, sem snúast um hinsegin mál að einhverju leyti, t.d. um fánamálunina í Grafarvogskirkju og fleiru, til að sjá hversu sterkari orð eru notuð og hversu harkaleg umræðan er orðin, hvernig fordómar og illindi eru komin upp. Maður skirrist kannski við að nota orðið hatur því það er túlkað á mismunandi hátt, en sumt af þessu verður ekki túlkað öðruvísi, því miður.“ 

Jóhannes vill tefla gleðinni gegn þessu andstreymi, gleði með alvarlegum undirtóni. 

Sjá einnig: Facebook-viðburður Gleðigöngunnar

Sjá einnig: Hinsegin dagar