Fókus

Eastwood neitaði að kaupa bíl handa syninum - Ástæðan var einföld

Mynd
Feðgarnir Clint og Scott Eastwood.

Leikarinn og leikstjórinn Clint Eastwood er orðinn 96 ára. Hann er tvígiftur, hefur átt í fjölda samband, stundum mörgum á sama tíma og á átta börn, svo vitað sé, fædd á árunum 1954 til 1996, með sex konum. Fimmta systkinið í röðinni er leikarinn Scott Eastwood, sem fæddur er árið 1986.

Scott minntist þess að faðir hans neitaði að kaupa handa honum bíl til að kenna Scott gildi peninga.

„Pabbi minn vildi ekki kaupa bíl handa mér,“ sagði Scott í hlaðvarpsþættinum Armchair Expert á mánudag. „Ég setti fram þessa kynningu að ég þyrfti bíl til að komast í vinnuna og hún gekk ekki vel.“

Eftir menntaskóla fór Scott í Santa Barbara City College og starfaði sem barþjónn í „skuggalegra hverfi“ og fór ferða sinna á reiðhjóli.

Þótt Scott viðurkenndi að hann hafi verið „reiður“ út í pabba sinn á þeim tíma, þá var harða ástin „líklega til góðs“ af nokkrum ástæðum, þegar litið er til baka.

„Í fyrsta lagi, gildi peninga og hvað þeir eru og að læra að virða þá ... ég held að það sé aðallexían sem hann vildi að ég vissi, að peningar vaxa ekki á trjám og það er betra að fara út og vinna sér þá inn.“

„Að gefa barninu þínu bíl þegar það er 18 eða 19 ára, er barnið að drekka og keyra? Er barnið að gera eitthvað heimskulegt?“

Mynd

Þrátt fyrir áratuga velgengni segir Scott að faðir sinn sé enn sparsamur í dag.

„Hann er ekki efnislegur maður. Hann kemur af allt annarri kynslóð,“ útskýrði Scott. „Hann fæddist árið 1930, svo hann upplifði raunverulegar lægðir kreppunnar miklu og það festist í minni hans að eilífu. Hann segir þér enn þann dag í dag að slökkva ljósið ef þú ferð að heiman. Eins og: Af hverju í ósköpunum slökktirðu ekki ljósið?“

Clint vissi ekki af elsta barni sínu, Laurie Murray, sem fæddist árið 1954, og hún var gefin til ættleiðingar. Feðginin kynntust síðan mörgum árum síðar.

Clint eignaðist sitt annað barn, Kimber Lynn, með Roxanne Tunis árið 1964. Fjórum árum síðar eignaðist Clint soninn Kyle, með fyrri konu sinni, Maggie Johnson. Þau eignuðust einnig dótturina Alison árið 1972.

Scott fæddist árið 1986, sonur Clints og flugfreyjunnar Jacelyn Reeves. Þau eignuðust einnig dótturina Kathryn árið 1988. Dótturina Francescu eignaðist Clint árið 1993 með bresku leikkonunni Frances Fisher og aðra dóttur, Morgan, árið 1996, með fyrrverandi eiginkonu sinni, Dinu Eastwood.

Clint virðist alltaf hafa alið börnin sín upp með ströngum aga. Í viðtali árið 2015 greindi Scott frá ráðum föður síns þegar Scott sagðist vilja verða leikari:

„Honum var alveg sama hvort ég væri pípulagningamaður eða leikari. Hann sagði bara: „Hvað sem þú gerir, gerðu það vel. Vertu auðmjúkur, vinndu hörðum höndum og vertu karlmaður.““