Mörgum brá í brún að sjá myndir af leikaranum Brian Cox í hjólastól. Óttuðust margir að hann væri að glíma við alvarlegan heilsubrest eða þá að ellikerling hefði skyndilega náð að læsa krumlum sínum fast í hann.
Hið rétta er hins vegar að hinn skoski leikari Cox, sem er orðinn áttræður að aldri, er að leika í nýrri þáttaröð um góða raðmorðingjann Dexter. Seríu sem kallast Dexter: Resurrection.
Í þáttunum leikur Cox hlutverk morðingjans Don Framt sem kallaður er New York ristirinn. Á myndinni sést hann í bláum pólóbol, dökkbláum buxum, með hvítt hár og yfirvaraskegg og gleraugu, sitjandi í vélknúnum hjólastól.
Cox er ekki ókunnur því að leika vonda kalla og jafn vel raðmorðingja. En hann var sá fyrsti til að leika mannætuna frægu Hannibal Lecter, í myndinni Manhunter sem kom út fimm árum á undan Silence of the Lambs þar sem Anthony Hopkins lék sömu persónu.
„Það er svo auðvelt að leika illmenni sem hræðilegt fólk, en það er erfiðara að leika illmenni sem eru viðkunnanleg,“ sagði Cox í nýlegu viðtali. Hann hafi meðal annars horft á réttarhöldin yfir raðmorðingjanum Ted Bundy til þess að læra hvernig ætti að túlka viðkunnanlegan morðingja.