Fókus

Íslenska Barnahjálpin styður við skólastarf í Kenía og hjálpar einstæðum mæðrum að öðlast betra líf

Mynd
Ingveldur, Alexandra og Unnur.

Í þætti 87. af hlaðvarpinu 4.vaktin komu þær Alexandra Noor Douglas, Ingveldur Ýr Jónsdóttir og Unnur Kristín Óladóttir í spjall. Þær eiga það sameiginlegt að hafa tekið þátt í starfi Íslensku barnahjálparinnar (ÍB) sem sinnir hjálparstarfi í Kenía en Ingveldur er einnig formaður félagsins. 

Hlaðvarpið 4. vaktin fjallar um málefni langveikra og fatlaðra barna í víðu samhengi. Þáttastjórnendurnir Sara Rós Kristinsdóttir og Lóa Ólafsdóttir vilja með hlaðvarpinu varpa ljósi á mikilvægt sjálfboðastarf sem unnið er í Kenía. Það er magnað að hlusta á þær segja frá starfinu og lífinu í Kenía. 

Unnur og Alexandra eru nýkomnar úr sinni fyrstu ferð þangað en taka báðar fram að hún verði sannarlega ekki þeirra síðasta. Þær fóru ásamt mökum sínum og tengdafjölskyldu. Tengdamóðir þeirra, Þorgerður Elíasdóttir, hefur um árabil tekið virkan þátt í hjálparstarfi Íslensku Barnahjálparinnar í Kenía og bauð fjölskyldu sinni að fara með í ferðina.

Mynd
Þorgerður Elíasdóttir ásamt sonum sínum Mikael Tamar Elíassyni og Ara Auðunni Jónssyni og kærustum þeirra Unnur Kristín Óladóttir og Alexandra Noor Douglas.

Ingveldur fór fyrst til Kenía árið 2018 í tilefni útskriftar dóttur hennar úr framhaldsskóla. Þau hjónin Ingveldur og Ársæll Hafsteinsson fóru þá ásamt dóttur Ingveldar í sína fyrstu ferð og síðan þá hefur Ingveldur farið nánast árlega til Kenía. Fjölskyldan hefur öll tekið virkan þátt í starfi Íslensku Barnahjálparinnar og segir Ingveldur það hafa reynst þeim afar dýrmætt og styrkt fjölskylduböndin.

Í viðtalinu kom það fram að þær upplifa allar þáttaskil í lífi sínu: „Þið talið allar svolítið fyrir og eftir ferðina greinilega,“ segir Sara og þær taka allar undir það og  segir Alexandra:  „Þegar maður fór og hitti fjölskyldur og börn sem eru með ekkertÞað heyrist greinilega í spjallinu þeirra á milli að Kenía og fólkið þar hefur haft mikil áhrif á sýn þeirra á heiminn. Alexandra bætir svo við: „Það eru allir bara að reyna að lifa af.

Mynd
Alexandra ásamt vinkonu sinni.

Að styðja við börn til skólagöngu og við uppbyggingu skólanna er einn stærsti hluti hjálparstarfsins. Skólarnir sem ÍB rekur í Kenía eru staðsettir í Nairobi og í Loitoktok sem er í Masaailandi við rætur Kilimanjaro. Það er hins vegar ekki það eina sem starfið snýst um og segja þær frá heimsóknum sem þau fóru í til einstæðra mæðra og hjálpuðu þær þeim meðal annars við að byggja upp fyrirtæki. Ingveldur segir„Þetta er ótrúleg hjálp í þessu því það er ekki bara verið að koma börnunum í skóla heldur hjálpa þeim að hjálpa sér áfram, komast í betri aðstæður vinnulega séð“.

Rætt var einnig um málefni fatlaðra og hvernig félagið leggur sig fram við að styðja einnig við þennan málaflokk. Í ferðinni studdu þær við kaup á hjólastól fyrir stúlku sem hafði ekki átt góðan stól til að koma sér á milli staða. Þetta mun auka á lífsgæði stúlkunar og auka á frelsi hennar til muna.  Lóa spyr þær: „Tókuð þið einhvern veginn eftir viðhorfum til dæmis gagnvart fötluðum börnum eða þeim sem eru með einhverjar skerðingar?“ Unnur svarar: „Það er bara eitt barn sem við hittum þarna úti á götu og svo eina sem var lömuð og var í hjólastól“. 

Mynd
Ari Auðunn spjallar við ungan dreng.

Við mælum með að hlusta á þáttinn í heild og hlusta á þær segja frá lífinu í Kenía:

Þeir sem hafa áhuga að fara í sjálfboðaliðastarf úti eða ævintýraferð, þá er það ferðaskrifstofan Ferðasýn sem sér um ferðirnar og það er í boði að sérhanna ferð eftir sínum þörfum. Þá er hægt að blanda saman sjálfboðaliðaferð og ævintýraferð, það er boðið upp á safari og fleiri afþreyingar. 

Mynd

-Hægt er að styðja við starfið með að gerast styrktarforeldri barns og kostar það 4.500 krónur á mánuði. Með því er verið að styðja við skólagöngu, skólagögn og eina máltíð á dag.

-Hægt er að kaupa gjafabréf og fær handhafinn fallegt gjafabréf með tilheyrandi texta í hendurnar. Einnig er hægt að styðja við starfið með frjálsum framlögum.

-Öll framlög til ÍB eru forskráð sem skattaafsláttur á næsta skattframtali.

Mynd

Hægt er að fylgjast með Íslensku Barnahjálpinni á samfélagsmiðlum eða á heimasíðu samtakanna.

Mynd
Mynd