Fókus

Eiki Hauks og Sigga Beinteins stálu senunni á Kótelettunni í gærkvöldi

Mynd
Sigga Beinteins. Mynd: Mummi Lú.

Tónleikagestir skemmtu sér konunglega á Kótelettunni í gærkvöldi þegar fyrra stóra tónleikakvöld hátíðarinnar fór fram. Það voru þau Eiríkur Hauksson og Sigga Beinteins sem stálu senunni þegar þau komu fram með Stuðlabandinu. Auk þeirra komu fram Aron Can, GDRN, Herra Hnetusmjör, Kristmundur Axel, Retro Stefson, Inspector Spacetime, The Curly FM Show, Tónhyllur Akademía, ISSI, Elvar, DJ Gugga og 12:00.

Mynd
Mynd: Mummi Lú.

„Það er ótrúlega gaman að sjá svona mikla gleði á svæðinu. Stemningin í gærkvöldi var nákvæmlega það sem við vonuðumst eftir. Það er tillhlökkun hjá okkur fyrir deginum í dag og svo lokum þessu á Music Festivalinu í kvöld,“ segir Einar Björnsson, stofnandi Kótelettunnar.

Mynd
Mynd: Mummi Lú.

Í dag, laugardag, nær BBQ Festival-hluti Kótelettunnar síðan hámarki í Sigtúnsgarðinum þar sem boðið verður upp á glæsilega og ókeypis fjölskylduhátíð frá klukkan 13:00 til 16:00. Auk fjölbreyttrar sviðsdagskrár verður þar að finna Stóru grillsýningu Kótelettunnar, þar sem helstu framleiðendur og söluaðilar grilla, grilltækja og fylgihluta sýna nýjustu vörurnar og gefa gestum tækifæri til að skoða það allra nýjasta í grillheiminum.

Mynd
Mynd: Mummi Lú.

Jafnframt verður hið vinsæla Góðgerðagrill Kótelettunnar, þar sem landsþekktir einstaklingar, kokkar og gestir taka sér stöðu við grillið og grilla til styrktar góðu málefni. Þar blandast saman góð stemning, grillilmur og kærleikur á einstakan hátt.

Mynd
Mynd: Mummi Lú.

Á sviðinu verða meðal annars VÆB, Emmsjé Gauti, Lína Langsokkur, Ívar og Hákon, Freyja Karamellufluga, Guðjón Smári og Jóna Margrét ásamt Hvolpasveitinni. Yngstu gestirnir geta auk þess notið UK Tívolís, Sprell Tívolís, Veltibílsins, Pepsi-foosball-vallar og fjölbreyttrar afþreyingar. Aðgangur að fjölskylduhátíðinni er ókeypis fyrir alla.

Mynd
Eiríkur Hauksson. Mynd: Mummi Lú.

Í kvöld koma fram þau Páll Óskar Hjálmtýsson, FM95BLÖ, Birnir, Emmsjé Gauti, Klara Einars, Papar, Doctor Victor, Selma Björns, Sverrir Bergmann og fjölmargir fleiri.

Mynd
Mynd: Mummi Lú.
Mynd
Mynd: Mummi Lú.