Fókus

Arnhildur Anna og Alfreð eignuðust son

Mynd
Arnhildur Anna og Alfreð. Mynd: Instagram.

Parið Arnhildur Anna Árnadóttir kraftlyftingakona og þjálfari, og Alfreð Már Hjaltalín heilsunuddari, eignuðust dreng þann 7. júlí.

„070726. Litli bróðir er loksins kominn í heiminn! Heilar 18 merkur af fullkomnun og við elskum hann svo mikið“.

Parið á fyrir dótturina Úlfhildi Eddu, sem er fædd árið 2023.