Fókus

Óvæntur skilnaðurinn afhjúpaðist eftir að leikkonan lét ekki sjá sig í brúðkaupi ársins

Mynd
Mynd/Getty

Úti er ástarævintýri hjá hjónunum stjörnuhjónunum Margaret Qualley og Jack Antonoff eftir tæplega þriggja ára hjónaband. Frá þessu greina slúðurmiðlarnir en yfirvofandi skilnaður kemur sem þruma úr heiðskíru lofti enda töldu flestir að tónlistarmaðurinn og leikkonan sæju ekki sólina hvort fyrir öðru.

Antonoff hefur starfað náið með tónlistarkonunni Taylor Swift sem gekk að eiga NFL-kappann Travis Kelce á föstudaginn í síðustu viku. Það vakti athygli að tónlistarmaðurinn tók systur sína með í brúðkaupið frekar en eiginkonuna. 

People hefur það eftir heimildarmönnum að hjónaband Antonoff og Qualley hafi í raun staðið á brauðfótunum frá öndverðu og einkennst af endalausumrifrildum. Leikkonan og Antonoff hnutu hvort um annað árið 2021 en þá fóru fyrst að birtast myndir af þeim saman. Þau opinberuðu svo samband sitt árið 2022 og trúlofuðu sig skömmu síðar. Þau giftu sig svo í ágúst árið 2023. 

Qualley hefur ekki tjáð sig opinberlega um skilnaðinn en aðdáendur tóku þó eftir því að hún er búin að eyða myndum úr brúðkaupi sínu af Instagram, en myndunum hafði hún deilt í mars í tilefni þess að hljómsveit Antonoffs, Bleachers, gaf út lagið Dirty Wedding Dress sem fjallaði um brúðkaupið.

Eins og áður segir þá þykir skilnaðurinn nokkuð óvæntur en það var bara í apríl sem Antonoff talaði um hjónaband sitt í spjallþætti Howard Stern. Antonoff lýsti því þar hvernig hann féll kolflatur fyrir leikkonunni þegar þau kynntust í gleðskap árið 2021. Hann hafi strax þá vitað að hann myndi giftast henni. 

Hjónin eru nú skilin að borði og sæng en hafa ekki gengið frá lögskilnaði. Einn heimildarmaður People telur mögulegt að þau nái aftur saman. Sem stendur séu þau að taka sér tíma til að meta stöðuna.

Heimildarmaður Page Six segir að skilnaðinn megi rekja til viðvarandi samskiptavanda. Antonoff sé smámunasamur og kæri sig ekki um annað en að hlutirnir séu alfarið gerðir eftir hans höfði. Qualley hafi upplifað að hennar sjónarmið skiptu hann engu.