Velska söngkonan og lagahöfundurinn Bonnie Tyler lést í dag, 75 ára að aldri, á sjúkrahúsi í Portúgal. Tyler var flutt á sjúkrahús í Faro í Portúgal í maí síðastliðnum þar sem hún undirgengst bráðaaðgerð á þörmum og ákváðu læknar að henni skyldi haldið sofandi á meðan hún næði bata. Hún vaknaði úr dái um miðjan júní en náði aldrei bata.
Tyler var sæmd MBE-orðunni (Member of the Order of the British Empire) af bresku konungsfjölskyldunni árið 2022þ Hún hlaut viðurkenninguna frá Elísabetu II Bretadrottningu vegna framlags síns til tónlistar og góðgerðarmála. Tyler veitti eitt af sínum síðustu viðtölum af því tilefni.
Kom tvisvar fram á Íslandi
Í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum er Tyler minnst.
Tyler kom tvisvar til Íslands og kom fram á tónleikum. Föstudaginn 5. desember 1986 kom hún fram í Laugardalshöll ásamt Foringjunum með Eirík Hauksson fremstan, Skriðjöklunum og Rikshaw.
Sumarið 2018 söng hún á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í Laugardag. Jón Bjarni Steinsson, einn eiganda og skipuleggjanda hátíðarinnar minnist Tyler:
„Það sem byrjaði sem einkahúmor varð að einhverju allt öðru, fyrir Secret Solstice 2018 náði ég sambandi við eiginmann Bonnie Tyler og bókaði hana til að spila, sem hún og gerði. Það voru 17 þúsund manns sem horfði á hana koma fram eftir að Jet Black Joe hitaði upp.
Það er enginn listamaður í sögu Secret Solstice sem náði jafn mörgum gestum fyrir framan svið á sama tíma.
Hún átti líka besta „ryder“ listann - whiský, kassi af bjór - 2 glös og klaki. Og hótelherbergi sem mætti reykja í. Við reyndum nokkrum sinnum að endurnýja kynnin, en Covid stoppaði okkur. Hvíldu í friði - Þú ert best - og hún söng það fyrst.“
Söngvarinn Örlygur Smári hitti Tyler og tók mynd af henni í Malmö í Svíþjóð árið 2013 þegar bæði tóku þátt í Eurovision. Hún söng fyrir hönd Bretlands eigið lag, Believe in Me. Eyþór Ingi Gunnlaugsson söng Ég á líf eftir Örlyg og Pétur Örn Guðmundsson.
„Hvíl í friði elsku Bonnie Tyler. Takk fyrir tónlistina og einstöku rödd þína. Öggi söngvari Hr. Eydís tók sjálfur þessa mynd, en hann hitti Bonnie Tyler á Eurovision í Malmö í Svíþjóð 2013 þegar hann fór út með lagið Ég á líf. „Ég hef sjaldan orðið jafn starstruck og þegar ég hitti Bonnie Tyler á göngunum baksviðs í höllinni í Malmö. Ég kom ekki upp einu orði en rétt náði að smella þessari mynd af stjörnunni áður en hún gekk framhjá mér. Bonnie kastaði á mig kveðju og var svo farin.”
„Hvíldu í friði, mín kæra. Bonnie Tyler. Ég mun alltaf minnast tónlistarstundanna okkar saman og allra þeirra skipta sem við hittumst með miklum hlýhug. Takk fyrir dásamlegar minningar. Þú gleymist aldrei“, segir Thomas Anders, meðlimur sveitarinnar Modern Talking.
„Hin yndislega Bonnie Tyler er farin frá okkur. Þessi velska snilldarkona sem ég mun aldrei gleyma. Ég var svo heppinn að hitta hana; hún var svo jarðbundin og skemmtileg, og röddin svo tilfinningaþrungin og ógleymanleg“, segir söngvarinn Howard Jones.
„Það er svo sorglegt að heyra fréttirnar af Bonnie Tyler. Hún var einstök kona, svo góð og vingjarnleg við mig þegar ég var ungur listamaður. Við hittumst nokkrum sinnum í gegnum árin og hún var alltaf hin sama Bonnie. Rödd hennar var virkilega mögnuð og þegar maður stóð við hliðina á henni fann maður svo sannarlega fyrir kraftinum í henni. Dásamleg goðsögn. Ég votta hinum yndislega eiginmanni hennar, Bob, fjölskyldunni og frábæru hljómsveitinni hennar mína dýpstu samúð á þessum sorgartímum. Tone xx“, segir Tony Hadley, fyrrum söngvari sveitarinnar Spandau Ballet.
Til gamans má geta að fyrir nær 40 árum upp á dag var lag Tyler, If You Were A Woman And I Was A Man, í áttunda sæti á lista Rásar 2, eins og sést á vikulegri samantekt DV sem kom út alla föstudaga.
Fjórða af sex systkinum
Tyler sem hét Gaynor Hopkins var fædd 8. júní 1951 í Skewen , Neath í Wales. Faðir hennar, Glyndŵr Hopkins, var kolanámumaður og hermaður í síðari heimsstyrjöldinni, og móðir hennar, Elsie Hopkins heimavinnandi. Hún var fjórða barnið í sex systkina hópi, systurnar Marlene, Angela og Avis, og bræðurnar Lynn og Paul. Sjöunda systkinið, Paulene, fæddist andvana.
Börnin ólust upp í tónlistarfjölskyldu við fjölbreytta tónlist. Tyler sagði að ein af hennar fyrstu minningum hafi verið að hlusta á móður sína syngja óperutónlist á heimilinu. Tyler segir helstu áhrifavalda sína vera Janis Joplin og Tina Turner og lag þeirrar síðarnefndu, River Deep - Mountain High uppáhaldslag sitt allra tíma. Í viðtölum gegnum tíðina hefur hún einnig lýst aðdáun sinni á Aretha Franklin, Wilson Pickett, Meat Loaf, Joe Cocker, Dusty Springfield, Guns N' Roses, Eminem, Duffy og sagði að hún vonaðist til að vinna með Adele, sem hún lýsti sem „frábærri lagahöfundi, söngkonu og flytjanda.“
Tyler gekk í grunnskóla, en hætti námi 16 ára gömul án prófgráðu og hóf að vinna í matvöruverslun. Í apríl 1969, þegar Tyler var tæplega 18 ára, skráði frænka hennar hana í hæfileikakeppni á staðnum og lenti hún í öðru sæti á eftir harmonikkuleikara. Þar byrjaði boltinn að rúlla, Tyler hóf að starfa sem bakraddasöngkona fyrir Bobby Wayne & the Dixies áður en hún stofnaði sína eigin hljómsveit, Imagination og breytti hún nafni sínu í Sherene Davis til að forðast rugling við velsku þjóðlagasöngkonuna Mary Hopkin.
Gift í 54 ár
Tyler giftist Robert Sullivan, fasteignaþróunaraðila og keppanda í júdó á Ólympíuleikunum árið 1972, í júlí árið 1973. Þau eignuðust engin börn. Hjónin áttu fasteignir víða: hús í Albufeira í Algarve í suðurhluta Portúgals og í viðtali árið 1999 áttu þau ræktarland í Portúgal og Nýja-Sjálandi, 22 hús í Berkshire og London og 65 hesthús sem buðu upp á hestagæslu. Í viðtali árið 2013 sagði Tyler að býlinu á Nýja-Sjálandi hefði verið breytt í mjólkurbú 12 árum eftir að þau keyptu landið og að hún og Sullivan ættu einnig grjótnámu.
Valdi nýja nafnið eftir nöfnum í dagblaði
Árið 1975, sá Roger Bell, sem leitaði uppi hæfileikaríka tónlistarmenn, hjómsveitina spila í Townsman Club í Swansea. Bell bauð Tyler til London til að taka upp prufulag og eftir nokkra mánuði komst hún á útgáfusamning hjá RCA Records. Mælt var með að hún breytti nafni sínu og eftir að hafa tekið saman lista yfir eftirnöfn og fornöfn úr dagblaði valdi Davis nafnið Bonnie Tyler.
Fyrsta smáskífan kom út í apríl 1976 en komst ekki inn á vinsældarlista. Fyrsta platan, The World Starts Tonight, kom út í febrúar 1977.
Hrjúfi tónninn verður til
Raspur eða hrjúfur tónn einkenndi söngstíl Tyler. Tónninn varð til vorið 1977. Þá gekkst Tyler undir aðgerð til að fjarlægja hnúta í raddböndunum og læknirinn ráðlagði henni að hvíla röddina í sex vikur. Hún öskraði af gremju einn daginn, sem leiddi til varanlegs hrjúfs tóns.
Eitt þekktasta lag Tyler kom út á smáskífu í nóvember 1977, It´s a heartache, lagið náði 4. sæti vinsældarlistans í Bretlandi og 3. sæti á Billboard Hot 100 listanum.
Mest selda smáskífa allra tíma
Tyler vildi ekki endurnýja samning sinn við RCA og skrifaði undir samning við CBS, þar sem hún valdi að vinna með Jim Steinman. Á öðrum fundi þeirra flutti hún fyrir hann lagið Total Eclipse of the Heart, sem kom út 11. Febrúar 1983. Smáskífan er ein sú mest selda allra tíma með yfir sex milljón seldra eintaka.
Fimmta stúdíóplata hennar, Faster Than the Speed of Night , komst í fyrsta sæti á breska listanum og fjórða sæti á bandaríska Billboard 200 listanum. Tyler fékk fjölda tilnefninga vegna plötunnar, tveggja Grammy verðlauna , tveggja AMA verðlauna og BRIT verðlauna.
Árið 1984 gaf hún út lagið Holding Out for a Hero sem var í kvikmyndinni Footloose með Kevin Bacon í aðalhlutverki sem öll börn 80´s kynslóðarinnar þekkja.
Hafnaði James Bond
Tyler fékk boð um að taka upp titillag myndarinnar Never Say Never Again um njósnara hennar hátingar James Bond, en hafnaði því ágæta boði.
Sjöunda platan, Hide Your Heart, kom út 9. maí 1988, Desmond Child framleiddi og innihélt platan samstarf við Michael Bolton, Albert Hammond og Diane Warren.
Á tíunda áratugnum skipti Tyler tvisvar um útgefenda. Fimm stúdíóplötur komu út á þeim áratug og starfaði Tyler með fjölmörgum þekktum listamönnum líkt og áður. Má nefna Giorgio Moroder, Nik Kershae, og Jim Steinman.
Eftir aldamót gaf Tyler út þrjár stúdíóplötur, sem nutu nokkurra vinsælda og fylgdi Evróputónleikaferð í kjölfar þeirra allra. Tyler birtist víða með lög sín í sænskum sjónvarpsþætti, sjónvarpsauglýsingu fyrir Mastercard, sem gestur í úkraínska The X- factor og einnig gaf hún út tvær safnplötur.
Eurovision fyrir hönd Bretlands
Árið 2012 tók Tyler sextándu plötu sína upp í Nashville í bandaríkjunum. Hún sendi plötuna til BBC fyrir útgáfu til að fá endurgjöf og báðu þeir hana að keppa fyrir hönd Bretlands árið 2013 með riðja lag plötunnar, Believe in Me. Tyler endaði í 19. Sæti í keppninni með 23 stig. Það var þó plástur á sárið að varð fyrsti fulltrúi Bretlands til að hljóta útvarpsverðlaun í Eurovision-söngvakeppninni, fyrir besta lag og bestu kvenkyns söngkonu.
Tyler hélt áfram að gefa út efni. Sautjánda platan, Between the Earth and the Stars, kom út í mars árið 2019 og náði 34. sæti á breska vinsældalistanum. Í kjölfarið fylgdi Evróputónleikaferð sem endaði með framkomu á BBC Proms in the Park í Hyde Park og aðaltónleikum í London Palladium í september.
Síðasta stúdíóplata hennar, The Best Is Yet to Come, kom út í febrúar 2021.
Tyler gaf út sitt síðasta lag, Only Love, í mars 2026 og frumsýndi það á tónleikum í O2 Shepherd's Bush Empire í London
Tyler var aldrei mikill lagasmiður, en samdi þó nokkur lög á ferlinum.
Eftir Tyler liggja 18 stúdíóplötur, þrjár tónleikaplötur, fjórar stuttplötur, 83 smáskífur og nokkrar safnplötur. Einnig fjöldi tónlistarmyndbanda og framkoma í tveimur kvikmyndum og fjölda sjónvarpsþátta.