Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra vakti gríðarlega athygli í Tyrklandi og víðar á leiðtogafundi NATO sem fór fram á dögunum í Ankara á Tyrklandi. Margir hrósuðu henni fyrir að vera ómyrk í máli þegar hún sagði Ísland skýrt í sinni afstöðu um að Grænland tilheyri Grænlendingum. Vakti klæðaburður hennar einnig athygli þó að skiptar skoðanir hafi verið á hvítri dragt sem hún klæddist á fundinum.
Tyrkneska blaðakonan Meltem Ö. Marbois, sem er búsett í Frakklandi, gagnrýndi dragtina og segir hana ekki í samræmi viðtyrknesk viðmið. Jakki dragtarinnar sé of stuttur og buxurnar of þröngar. Þar með sjáist línur forsætisráðherrans sem sé ekki viðeigandi. Rétt er að taka fram að þessari fullyrðingu er harðlega mótmælt af samlöndum blaðakonunnar í athugasemdum. Þar er bent á að Kristrún sé ekki múslimi og hafi enga sérstaka ástæðu til að hylja útlínur sínar. Klæðnaður hennar sé auk þess frekar íhaldssamur og látlaus þó að hann sé á sama tíma smekk- og glæsilegur.
„Afsakið mig, en kona sem mætir á alþjóðlegan fund í svona fatnaði er ekki með únsu af skynsemi. Finnska gellan var svona líka. Þeir [kjósendur] velja þetta fólk til að vera ekkert meira en augnayndi.“
Fékk blaðakonan eins að heyra það að Kristrún væri vel starfi sínu vaxin, með góða menntun og fullfær um að standa jafnfætis öðrum þjóðarleiðtogum sem mættu til fundarins.
Pardon da şu kıyafetle uluslararası toplantıya katılan kadında zerre akıl yoktur. Finlandiyalı da böyleydi. Bunları konu mankeni olarak seçiyorlar. pic.twitter.com/n9D1EPfXsF
— meltem o. marbois (@MarboisMeltem) July 8, 2026
Aðrir hrósuðu fatnaðinum og notuðu hann sem dæmi um það að vestrænn klæðnaður þurfi ekki að þýða það að hold sé berað. Þessir aðilar fengu þó líka gagnrýni og var bent á að bæði Kristrún og forsætisráðherra Ítalíu, Giorgia Meloni, væru þarna mættar á fund NATO sem þjóðarleiðtogar en ekki sem ferðamenn eða fyrirsætur á tískusýningu. Því sé fullkomlega eðlilegt að þær, líkt og karlkyns þjóðarleiðtogarnir, hafi klætt sig í jakkaföt (eða dragtir öllu heldur) frekar en bikiní eða blómakjóla.
Açık ama çıplak değiller.. Soyunmayı batılılaşma sanan bazı köle ruhlulara duyurulur.. pic.twitter.com/WT99mnuXpV
— Hikmet Bilici (@hikmetbilici25) July 8, 2026
Siyasette ve diplomaside Kadının özgüveni zarafeti gösterir kendini.
Öyle çok abartmaya dekolteye gerek yok bence.⤵️
Izlanda Başbakanı Kristrún Frostadóttir pic.twitter.com/ByGc1B0tqX— Gülizar Şengül Peçen (@GSengulPecen) July 8, 2026
İzlanda Başbakanı’nın özgüveni, sadeliği ve zarafeti…
Demek ki boyacı küpüne girip çıkmadan, dekolte giyinmeden de kadın olunabiliyormuş.
Teşekkürler Sayın İzlanda Başbakanı Kristrún Frostadóttir. pic.twitter.com/R2lUeyoCxx— Behçet Saatcı (@behcetsaatci) July 8, 2026
Eins vakti það athygli netverja hvað Kristrún er ungur þjóðarleiðtogi og hversu mikil lífsgæði eru hjá þjóð hennar þar sem meðallaun eru margfalt hærri en í Tyrklandi og mun meiri jöfnuður.
Trump 'ın korktuğu Avrupa'nın iki Sosyal Demokrat lideri
Birisi İspanya Başbakanı Pedro Sanchez diğeri ise, İzlanda Başbakanı Kristrun Frostadottir
Antipatik hareketleriyle Faşist Meloni sizin olsun, @KristrunFrosta yeter bize 😊 pic.twitter.com/FXx6u3WBrw— Engin Koyuncu (@E_Koyuncu) July 8, 2026
Nato zirvesinin açık ara en güzel ve asil kadını İzlanda başbakanı Frostadottir https://t.co/spfdbwJngY
— IŞIN💉🎭✨️ (@acilnurse) July 8, 2026
Fannst Kristrún bjóða Trump birginn
Kristrún vakti eins athygli Bandaríkjamanna sem fylgdust með fundinum. Þar með talið hjá MAGA-áhrifavaldnum Matt Wallace sem taldi Kristrúnu hafa boðið Donald Trump Bandaríkjaforseta birginn þegar hún tók í hönd hans og horfði í augu hans á sama tíma. Að mati Wallace var Kristrún þar í einhvers konar valdatafli.
When she gets to Trump, she locks eye contact and refuses to break first https://t.co/ybe0zasVsY pic.twitter.com/RbS1Sm1z1v
— Matt Wallace (@MattWallace888) July 8, 2026
When she stepped out of the car my jaw hit the floor pic.twitter.com/jK3AKB89my
— USA NEWS 🇺🇸 (@usanewshq) July 7, 2026
In case you wanted to feel like an underachiever today, Iceland's prime minister is only 38 pic.twitter.com/YvP3kH6z7o
— Kathryn Watson (@kathrynw5) July 7, 2026
Sakna Kristrúnar strax
Sumir urðu hálf hryggir þegar Kristrún yfirgaf fundinn.
Goodbye my queen 👸
Kristrun Frostadottir pic.twitter.com/mzp7Pi76OT— DOJİ 💹🧲 (@lock0xbt) July 9, 2026
İzlanda Başbakanı Kristrun Frostadottir, Türkiye'den ayrıldı. pic.twitter.com/m22QXEHomM
— BPT (@bpthaber) July 9, 2026