Börn bresku fyrirsætunnar og áhrifavaldsins Katie Price táruðust þegar þau ræddu um kókaínnotkun móður sinnar í nýjum heimildarþáttum á Sky sjónvarpsstöðinni. Junior, sem er 21 árs, og Princess, sem er 19 ára, eru börn Price með Peter Andre en þau hættu saman þegar börnin voru ung. Price sneri sér að kókaíni í kjölfar þess. Fjallað er um þættina á vef Mirror.
„Ég man hvað ég saknaði hennar mikið. Eitt skiptið sem ég man eftir þá var ég uppi í rúmi að bíða eftir að hún kæmi heim. Ég vaknaði hálf fjögur um nóttina við einhver læti og sá hana koma inn í herbergið. Ég mun aldrei gleyma svipnum á henni, hún var augljóslega á einhverju,“ sagði Junior. „Ég sá þetta í augunum á henni. Ég varð hræddur. Hún var þarna en samt ekki.“
Hann segir að móðir sín hafi breyst á þessum tíma, þegar hann var mjög ungur var hún alltaf til staðar. „Ástin sem hún veitti mér var svo mikil, ég saknaði þess. Mamma var bara að dópa og gat ekkert hugsað um okkur, þannig var þetta bara. Á einhverjum tímapunkti fékk ég nóg af þessum hræðilegu aðstæðum og fór. Ég var líklega 14 eða 15 ára. Guði sé lof að pabbi var í góðu ástandi, þangað fór ég til að fá geðheilsuna mína aftur.“
Junior beið lengi eftir að móðir sín áttaði sig. Princess systir hans beið líka. „Hún gaf mér teppi, ég úðaði ilmvatninu hennar á það, teppið var þá mín tenging við hana. Ég man þegar ég kom heim úr skólanum og var einmana, þá kúrði ég með þessu teppi. Ég fór aldrei. Ég vildi vera til staðar ef hún þyrfti á mér að halda. Ég held að hún hafi ekki skilið það, hún var svo upptekin af eigin vandamálum.“
Sáu systkinin um að passa upp á hvort annað, þau lærðu að hita sér mat og sjá um heimilið. Price ræðir einnig um kókaínnotkunina í heimildarþáttunum. „Þegar ég heyri hvernig krakkarnir upplifðu þetta tímabil þá brýtur það í mér hjartað. Ég passaði samt alltaf upp á þau, ég var með fólk í kringum mig sem hjálpaði mér við það.“
Price klessti bílnum sínum undir áhrifum í september 2021 og fór eftir það í meðferð. Hefur samband hennar við Junior og Princess batnað mikið síðan.