Stjörnuhjónin Taylor Swift og Travis Kelce pöntuðu að sögn meira en 100 pizzur í risastórt brúðkaup sitt í Madison Square Garden þann 3. júlí, og gestirnir höfðu úr fjölmörgum bragðtegundum að velja.
Þrátt fyrir að allir gestir hafi undirritað trúnaðarsamning (e. Non Disclosure Agreement) fyrir veisluna hafa upplýsingar um athöfnina smátt og smátt verið að birtast á samfélagsmiðlum. Ólíklegt er að hjónin muni höfða mál gegn kjaftaskjóðum, en slíkar munu líklega ekki fá fleiri veisluboð frá hjónunum.
1000 gestir voru viðstaddir og vinur hjónanna, leikarinn Adam Sandler, gaf þau saman.
Í yfirlýsingu fjölmiðlafulltrúa Swift kom fram að:: „Taylor og Travis höfðu hvorki brúðarmeyjar né brúðguma. Austin Swift var svaramaður Taylor og Jason Kelce var svaramaður maður Travis.“
Frænka Swift, Robin Gentry, staðfesti að það væri „nóg“ af mat fyrir gestina að njóta og að brúðkaupstertan hafi slegið í gegn.
Heimildarmaður US Weekly sagði að hjónin hefðu pantað meira en 100 pizzur frá Mama's TOO! handa gestum sínum til að fá sér snarl fram eftir kvöldi. Stór pizza kostar um 28 dollara, sem þýðir að pöntunin gæti hafa kostað nýgiftu hjónin næstum 3.000 dollara.
Pöntunin innihélt nánast allar tegundir af pizzum sem Mama's TOO! hefur upp á að bjóða, þar á meðal sérrétt hússins (mozzarella, plómutómatsósa, parmesan, basil og extra virgin ólífuolía), venjulega pepperoni, Angry Nonna (sterk Soppressata, þroskaður mozzarella, kalabrísk chiliolía og heitt hunang) og fleira. Heimildarmaðurinn greindi frá því að eigandi pizzastaðarins hefði persónulega afhent pöntunina í Madison Square Garden til að tryggja að allt gengi snurðulaust fyrir sig.
Gestir skemmtu sér einnig að því er segir á fullu dansgólfi alla nóttina, þar sem Paul McCartney og Stevie Nicks komu meðal annars fram. Nýgiftu hjónin héldu einnig lúxus happdrætti þar sem gestir gátu unnið Cartier-skartgripi, Chanel-töskur og fleira. Þátttakendur unnu miða í happdrættinu með því að taka þátt í fjölmörgum leikjum, þar á meðal minigolfi og fótbolta hringkasti. Talið er að hjónin hafi breytt risastórum íþróttahöllinni í fallegan innandyragarð til að fagna stóra deginum sínum.