Hún talar beint inn í samtímann, ný spennusaga Óskars Magnússonar, Hvalamorð. Nöfn sögupersóna vekja óneitanlega hugrenningartengsl við lifandi persónur sem hafa komið við sögu í deilum og átökum um hvalveiðar við Íslandsstrendur.
Í káputexta segir:
„Hvalveiðibátar Miðhvals hf. halda til veiða. Whalepeace, skip hvalfriðurnarsinna, er komið til hafnar í Reykjavík. Hvalavinir mótmæla á Austurvelli og við ónýtu hvalveiðibátana við Ægisgarð. Forsprakki hvalavinanna, Tom Waitrose, hverfur sporlaust. Er hann í fjórhjólaferð með Brad Pitt norður á Melrakkasléttu? Eða er hann liðið lík? Liggur Kjartan Leifsson forstjóri Miðhvals undir grun? Er hann í gæsluvarðhaldi?
Hvalamorð er fjórða sagan um Stefán Bjarnason hæstaréttarlögmann sem nú er verjandi Kjartans hvals. Hann býður lögreglunni birginn, snjall, snar og ráðagóður. Fáir standast honum snúning í réttarsölum og lögfræði – en á hálum ís fagurra kvenna leynast víða vakir.
Ráðherra stöðvar hvalveiðar: „Hef alltaf sagt að hann sé morðingi.“
Hverju breytir minkur í Skagafirði? Hvað var Waitrose hvalavinur að gera heima hjá Birni verkalýðsforingja á Akranesi? Fær Bjarni litli, sonur Stefáns og Anneyjar, pláss á leikskóla? Hver er Sesselja í Smáíbúðahverfinu?
Hvalamorð er listilega fléttað sakamáladrama úr nútímanum, með óvæntum vendingum, sláandi atburðarás og ófyrirsjáanlegum endi – skrifuð á þróttmikilli íslensku sem einkennir bækur höfundar. Þrátt fyrir óhugnanlega atburði er stíllinn líðandi lipur, háðskur og kaldhæðinn – sagan launfyndin og grípandi samfélagsádeila.
Óskar Magnússon er lögfræðingur og hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu, fyrrverandi hæstaréttarlögmaður, forstjóri, útgefandi og stjórnarformaður. Þetta er tíunda bók hans og sú fjórða um Stefán Bjarnason lögmann, sem strax eignaðist fjölda aðdáenda. Óskar býr í Fljótshlíð þar sem hann sinnir búskap meðfram ritstörfum.“
Heimildir DV herma að sagan hafi verið í smíðum í nokkuð langan tíma og verið fullklár er hvalveiðar urðu á ný fréttaefni. En þá mun hafa verið ákveðið að flýta prentun bókarinnar.
Ritstjórn DV hefur enn ekki lesið bókina en heyrt vel af henni látið, þykir hún bæði spennandi og skemmtileg.