Fókus

Fékk áfall þegar ljósmóðirin fann engan hjartslátt - Fann síðan fyrir einhverju skrítnu á milli fóta sinna

Mynd
Mynd/TikTok

Kanadíska móðirin Carolina Mareno finnur ekki fyrir hlýju og gleði þegar hún rifjar upp fæðingu yngsta sonarins sem kom í heiminn fyrir þremur mánuðum. Fyrir það fyrsta hafði hún greinst með streptókokkabakteríu þegar hún fór í gangsetningu og svo í öðru lagi man hún ekki eftir fæðingunni sjálfri þar sem hún var ekki með fulla meðvitund. Fæðingarsaga Carolinu sem hún deildi á TikTok hefur vakið mikla athygli og er nú fjallað ítarlega um fæðinguna hjá People.

Carolina þurfti að fara í gangsetningu en þar sem hún greindist jákvæð fyrir streptókokkum þurfti að gefa henni sýklalyf áður en stungið var á sekkinn hjá henni. Eftir að stungið hafði verið á sekkinn fékk Carolina lyf sem er notað til að koma fæðingu af stað. Carolina segist hafa upplifað mikil óþægindi á þessum tíma svo hún óskaði eftir mænudeyfingu.

Eftir klukkustund fannst henni mænudeyfingin ekki virka eins og skyldi. Hún endaði með að bæta í þrígang við deyfinguna og losnaði þá loksins við verstu verkina og náði að dotta. Hún bjóst ekki við að sonur hennar kæmi næstum því strax enda hafði það tekið hana langan tíma að koma eldri börnum sínum í heiminn.

Á meðan Carolina dottaði komu ljósmæður reglulega til að fylgjast með lífsmörkum barnsins. Stundum heyrðist viðvörunarhljóð frá hjartaritanum en hvorki ljósmæðurnar né Carolina kipptu sér upp við það enda tækið viðkvæmt og á það til að detta úr sambandi við hreyfingu móður eða barns.

Ljósmóðir náði þó ekki að tengja ritann aftur og fór Carolina að ókyrrast.

„Eftir því sem mínúturnar liðu og hún fann augljóslega ekki hjartsláttinn, þá vaknaði ég loks almennilega,“ segir Carolina sem varð á þessum tíma virkilega stressuð. Hún var beðin um að leggjast á bakið og ljósmóðir fór að þukla á henni magann en varð svo skrítin á svipinn.

„Hún benti á að maginn minn væri undarlegur og þá, ég veit ekki hvers vegna, hugsaði ég að barnið mitt væri dáið.“

Veinaði af hræðslu

Þá hagræddi Carolina sér í rúminu en fann þá eitthvað á milli fóta sér.

„Ég hélt þetta væri fylgjan eða að legið mitt hefði poppað út. Mig óraði ekki fyrir því að þetta væri barnið mitt. En ljósmóðirin lyfti teppinu upp og þar lá sonur minn á maganum undir teppinu. Hann var með andlitið á dýnunni. Hann grét ekki. Og ég upplifði ofsahræðslu. Ég fríkaði út. Augljóslega sjáum við þarna barnið, hann er ekki að gráta og hann hefur líklega verið þarna einhverjar mínútur, undir teppinu, undir mér. Það er eitthvað sem á ekki að koma fyrir nýfædd börn. Svo ég var skíthrædd. Ég hélt hann væri dáinn.“

Carolina veinaði af hræðslu á meðan ljósmóðirin tók drenginn upp og fór að nudda hann. Þá kom á daginn að drengurinn var heilsuhraustur og sprelllifandi. Hann hafði laumað sér í heiminn og í stað þess að reka upp vein hafði hann lagt sig.

„Ljósmóðirin tók ekki á móti honum, hann tók á móti sjálfum sér. Við höfðum ekki hugmynd um að hann væri kominn í heiminn, sem gerði þetta svo skuggalegt í fyrstu, þar sem þau fundu ekki hjartsláttinn þar sem hann var ekki inni í mér lengur. Við héldum að eitthvað hræðilegt hefði gerst.“

Sonur hennar er nú orðinn þriggja mánaða og er enn jafn rólegur og hann var þegar hann laumaði sér inn í þennan heim. Carolina segir að hér sé á ferðinni værasta barn sem hún veit um.

„Hann er auðveldasta barnið okkar og þetta hefur gengið eins og smurt brauð hjá okkur. Það var ótrúlega skuggalegt að koma að honum á maganum undir teppinu og að hann grét ekki en nú þegar við þekkjum persónuleika hans finnst okkur þetta ekkert skrítið. Hann er bara rólegasta barn í heimi.“

 

@carolina.moreno19 My epidural was DEFINITELY wayyyy too strong but thankful everything worked out. Also a big thank you to the amazing nurse I had. She was incredible #labor #birthstory #momsoftiktok #laboranddelivery #baby ♬ original sound - Carolina M |SAHM🩷🩵🩵

@carolina.moreno19 These are the details to how I ended up sleeping through my sons birth. I know it sounds ideal but I’m still a bit sad I missed the moment he came into the world, I’m also sad we didn’t get to record it since my other two kids have their birth videos. I do think since he was sooo low and I already had so much pressure that when I fully dilated I probably didn’t feel much of a difference so it didn’t wake me up. Also I loved reading everyone else’s stories! So thank you for commenting your experiences🥰 #laboranddelivery #birthstory #MomsofTikTok #momof3 #baby ♬ 直交しない軌跡をほどく - yasuhiro soda