Fókus

Svona leit Síðumúli út árið 1984 - Sjáðu bílaflotann og Sigga Sigurjóns sem blaðamann DV

Mynd
Mynd: Skjáskot YouTube.

Kvikmyndin Gullsandur kom út árið 1984 í leikstjórn Ágústs Guðmundssonar, sem einnig skrifaði handrit. Í aðalhlutverkum eru Edda Björgvinsdóttir, Viðar Eggertsson, Pálmi Gestsson og Matthew Driscoll. 

Myndin var jólamynd Austurbæjarbíós og fjallar um herflokk sem kemur óvænt í litla sveit austur á söndum og reisir tjaldbúðir út á miðjum sandi íbúum sveitarinnar til mikillar undrunar. Hreppsnefndarfundur er haldinn þar sem sitt sýnist hverjum og er ákveðið að fara og heimsækja hermennina og grennslast fyrir um ætlun þeirra. Engin svör fást og tortryggnin eykst. Veðurathugunarstúlka og vinstri sinnaður hreppsnefndarmaður ákveða að gera innrás með flugeldum, sem fréttist til höfuðborgarinnar og vekur athygli fjölmiðla. Hópur fólks í andaglasi fær þar þau svör að herliðið leiti að gulli á sandinum. Fjölmiðlar slá því upp og þá fyrst þá íbúar sveitarinnar áhuga á herliðinu og gullleitinni.

Kveikjuna að handritinu fékk Ágúst meðal annars í raunverulegum atburðum sem áttu ser stað á sandinum um og upp úr 1970 þegar bandaríski herinn veitti veglega aðstoð við leitina að „gullskipinu“. Í myndinni má einnig sjá fyrsta bílaeltingarleikinn í íslenskri kvikmynd.

Nokkur brot úr Gullsandi má finna á YouTube. Þar á meðal er skemmtilegt myndbrot sem sýnir hvernig Síðumúli leit út árið 1984 og bílafloti þess tíma. Myndbandið hefst á því formaður hreppsnefndar, leikinn af Jóni Sigurbjörnssyni, hringir suður. Eins og sjá má eru fjölmiðlarnir DV og Þjóðviljinn með skrifstofur í sama húsi í myndinni. Sigurður Sigurjónsson leikur blaðamann DV, og Viðar Eggertsson og Hanna María Karlsdóttir blaðamenn Þjóðviljans.