fbpx
Laugardagur 12.apríl 2025
Fókus

„Ég er ómenntaður og kláraði ekki menntaskóla og er mjög stoltur af því að hafa ekki fengið neitt upp í hendurnar“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 8. apríl 2025 09:52

Svavar Jóhansson. Mynd/Fitness Sport

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svavar Jóhannsson rekstrarmaður segist stoltur af því að hafa þurft að hafa mikið fyrir öllu í sínu lífi. Svavar, sem er nýjasti gesturinn í podcasti Sölva Tryggvasonar, keyrði þrisvar í viku með skottið fullt af próteini til Reykjavíkur frá Akureyri samhliða vinnu þegar hann byrjaði rekstur sinn og var með lagerinn í bílskúrnum hjá ömmu sinni.

„Ég byrjaði með þrjú hundruð þúsund kall að kaupa inn prótein fyrir 25 árum. Ég keypti eina tegund af próteini með vanillubragði og flutti það inn og byrjaði að selja sjálfur. Ég tók yfirdrátt í bankanum og var með hjartað í buxunum yfir því að geta ekki borgað til baka. En sem betur fer gekk þetta strax vel og boltinn fór að rúlla nokkuð hratt. Ég er ómenntaður og kláraði ekki menntaskóla og er mjög stoltur af því að hafa ekki fengið neitt upp í hendurnar og hafa þurft að hafa fyrir öllu sem ég hef unnið mér inn,“ segir Svavar, sem stofnaði Fitness Sport árið 1988 og var fyrstu árin með lagerinn í bílskúrnum hjá ömmu sinni.

„Ég var í annarri vinnu þegar ég byrjaði í þessu og borgaði mér engin laun fyrsta árið. Lagði bara á mig mikla vinnu og ákvað að hafa gaman að því. Það hefur legið óhemju vinna á bakvið þetta allt saman, en ég hef aldrei talið það eftir mér, enda hefur þetta alltaf verið áhugamál og mér hefur fundist gaman að vinna í kringum þetta. Þegar ég var að byrja bjó ég á Akureyri og vann fullan vinnudag og keyrði svo frá Akureyri til Reykjavíkur þegar vinnudeginum lauk klukkan fimm með skottið fullt af próteini. Svo snemma morguninn eftir var ég mættur hjá Bjössa í World Class og Jónínu Ben og fleirum til að fá þau til að kaupa þetta af mér og svo keyrði ég aftur til Akureyrar eftir hádegi. Þetta gerði ég þrisvar í viku í mörg ár samhliða fullri vinnu. Ég er ekkert að berja mér á brjóst fyrir þetta, en nánast allir sem stofna fyrirtæki þurfa að vinna fyrir því og það gleymist oft í umræðunni. Það er auðvelt að horfa á fólk eftir að það fer að ganga vel og halda að allt hafi komið upp í hendurnar á þeim.“

Þarft að taka áhættur

Svavar segist hafa farið í gegnum alls kyns tímabil í rekstrinum í gegnum tíðina, sumt hafi gengið vel, en annað alls ekki, en á endanum sé vegferðin það skemmtilegasta. Að leggja á sig, gera mistök og fá út úr því reynslu og uppskeru.

„Frumkvöðlar þurfa alltaf að leggja mikið á sig og taka alls konar áhættur. Það er hluti af jöfnunni. Ég hef farið í gegnum fullt af mistökum og hlutum sem hafa ekki gengið upp, en núna er ég búinn að læra af því og kominn með mikla reynslu einmitt út af mistökunum. Ég man til dæmis þegar ég hélt að það væri algjör snilld að flytja inn handlóð með sandi í, sem var ætlað til að labba með í göngutúrum eða fjallgöngum. Sandurinn slóst til og frá í lóðinu og átti að þjálfahandleggina. Þeir sem voru með þetta héldu rosalega kynningu og ég hélt að þetta væri algjör snilld og ég myndi moka þessu út. Til að gera langa sögu stutta þá hreyfðist þetta ekki og ég var í mörg ár að losa þetta úr búðinni,“ segir Svavar, sem talar líka í þættinum um ævintýrið í kringum orkudrykkjaframleiðslu.

„Við hönnuðum og framleiddum orkudrykk sem hét Ripped, sem var svipaður og RedBull eða Monster og þetta sló í gegn og seldist svakalega vel á árunum fyrir Covid og við vorum komnir með mjög góða markaðshlutdeild. En svo var öllum verksmiðjum í Evrópu lokað nánast alveg í tvö ár og þegar allt fór í gang aftur eftir Covid var biðröðin orðin svo löng að við vorum settir aftast í röðina. Þegar þú ert að keppa við aðila sem eru kannski að láta framleiða þúsund gáma af drykkjum fyrir milljónamarkaði ert þú ekki efstur á blaði. Eftir alla þessa pásu er erfitt að komast aftur í gott hillupláss í búðunum og koma þessu af stað aftur. En við munum koma með þessa drykki aftur inn á markaðinn.“

Koffínbaráttan

Svavar rifjar í þættinum upp alls kyns sögur af ferlinum, meðal annars þegar hann lagði í harða báráttu fyrir því að fá koffín leyft í fæðubótarefnum á Íslandi.

„Þetta var þannig að Ísland var nánast eina landið í heiminum þar sem koffínið var bannað og fæðubótarefni féllu þá undir lyfjastofnun. Fólk gat farið og keypt eins mikið af kaffi og það vildi, en það mátti ekki kaupa fæðubótarefni með snefil af koffíni. Einar vinur minn í Medico á eiginlega heiðurinn af því að þetta var leyft eftir að hafa byrjað stríð við lyfjastofnun og ég fylgdi svo á eftir honum í þessa baráttu. Það mátti heldur ekki selja orkudrykki með koffíni og flestum myndi finnast þetta mjög skrýtið í dag. Það hefur margt liðkast á undanförnum árum, en hér áður fyrr þurfti mjög oft að nota lögfræðinga og vera með vesen til að fá leyfðar vörur sem voru leyfðar nánast í öllum öðrum löndum í heiminum.“

Hægt er að nálgast viðtalið við Svavar og öll viðtöl og podköst Sölva Tryggvasonar inni á solvitryggva.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Söngvarinn hefur misst meira en 80 kíló – Sjáðu hann í dag

Söngvarinn hefur misst meira en 80 kíló – Sjáðu hann í dag
Fókus
Fyrir 2 dögum

Garðar birtir skjáskot af frægum Íslendingum auglýsa hættulegan leik – „Hræsnarar. Punktur“

Garðar birtir skjáskot af frægum Íslendingum auglýsa hættulegan leik – „Hræsnarar. Punktur“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Setja upp Shrek í Borgarleikhúsinu

Setja upp Shrek í Borgarleikhúsinu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Harry Bretaprins aftur mættur í dómsal í Bretlandi og fékk neyðarlega spurningu frá blaðamanni

Harry Bretaprins aftur mættur í dómsal í Bretlandi og fékk neyðarlega spurningu frá blaðamanni
Fókus
Fyrir 4 dögum

Móðir „kynlífsóðustu konu Ástralíu“ stígur fram

Móðir „kynlífsóðustu konu Ástralíu“ stígur fram
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ert þú með frestunaráráttu? Þá þarftu að lesa þetta

Ert þú með frestunaráráttu? Þá þarftu að lesa þetta
Fókus
Fyrir 5 dögum

Misbauð myndband áhrifavalds sem sakaði karlmann um áreiti – „Ef eitthvað er, þá ætti þessum manni að líða óþægilega“

Misbauð myndband áhrifavalds sem sakaði karlmann um áreiti – „Ef eitthvað er, þá ætti þessum manni að líða óþægilega“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Æskuvinkona Bryndísar Klöru stígur fram – „Þá hringir síminn og heimurinn eins og ég þekki hann hrynur“

Æskuvinkona Bryndísar Klöru stígur fram – „Þá hringir síminn og heimurinn eins og ég þekki hann hrynur“