Hann birti myndband af atvikinu á samfélagsmiðlum og útskýrði hvað fór úrskeiðis.
„Í andsvörum var ég að lýsa vissum efasemdum um áform ríkisvaldsins um að taka yfir námsbókamarkað menntaskólanema, sem er ný fyrirhuguð 350 milljóna árleg niðurgreiðsla sem alls ekki allir þurfa á að halda. Þessu fé mætti heldur beina þangað sem þess er meiri þörf.
Að auki hélt ég á lofti því sjónarmiði að það væri hollt ungu fólki að þurfa að vinna fyrir eigin bókakaupum í stað þess að fá allt „ókeypis“ – þótt skattgreiðendur þurfi auðvitað að borga á endanum.
Með því móti mætti einnig takmarka virðingarleysi ungdómsins fyrir hinu margvíslega prentaða efni, sem eykst óhjákvæmilega ef þeim líður ekki eins og þau hafi unnið sér sjálf inn fyrir bókunum.
Í því sambandi ákvað ég að taka persónulegt dæmi um reynslu mína af tilfinningalegu sambandi við hvers konar gefins bækur. Sú tilraun tók óvænta stefnu…“
Horfðu á atvikið hér að neðan.
Þá hefur maður formlega gert sig að athlægi í ræðustól Alþingis.
Í andsvörum var ég að lýsa vissum efasemdum um áform ríkisvaldsins um að taka yfir námsbókamarkað menntaskólanema, sem er ný fyrirhuguð 350 milljóna árleg niðurgreiðsla sem alls ekki allir þurfa á að halda. Þessu… pic.twitter.com/KExBe6ADoF
— Snorri Másson (@5norri) April 9, 2025